Samtal er verk sem byggir á grafísku tákni sem varð til við endurmörkun Alþingis árið 2024.
Formið sækir innblástur í hjarta Alþingis, sjálfan þingsalinn. Þar mætast ólíkar skoðanir, það er hlustað, tekist á, rætt saman og leitast við að finna sameiginlega niðurstöðu. Grafíkin vísar ekki aðeins í rýmið sjálft, heldur einnig í það sem þar á sér stað, lifandi lýðræði og enduróm radda almennings.
Teikningin er nú lykilgrafík Alþingis.
Við endurmörkun Alþingis kviknaði sú hugmynd hjá okkur að færa grafíkina yfir í efnislegan hlut. Húsgagn sem sameinar táknmynd Alþingis, íslenska hönnun og vandað handverk og skapar rými þar sem fólk getur sest niður og átt samtal.
Hugmyndin varð að veruleika á HönnunarMars í samstarfi við húsgangasmiðinn Mukka.
@mukkisig
Dialogue is based on a graphic symbol created during the rebranding of Alþingi in 2024.
Its form draws inspiration from the heart of Alþingi, the parliamentary chamber itself. This is where differing opinions meet, where people listen, engage, discuss, and strive to reach a shared outcome. The graphic references not only the physical space, but also what happens within it: a living democracy and the echo of the public’s voice. It has since become the key visual of Alþingi.
During the rebranding process, we developed the idea of translating this graphic into a physical object, a piece of furniture that brings together the symbol of Alþingi, Icelandic design, and high-quality craftsmanship, creating a space where people can sit down and engage in conversation.
That idea became a reality at DesignMarch in collaboration with the furniture maker Mukki.