Happdrætti!
Það er skemmst frá því að segja að sonur minn er föðurbetrungur, því ég á ekki roð í hann lengur! Eins og flestir sem þekkja Hákon vita hefur hann tekið miklu ástfóstri við skákíþróttina. Hann er svo gríðarlega áhugasamur að það líður varla dagur þar sem hann teflir ekki.
Svo er ungi skák-kappinn svakalega spenntur að fara með Skákfélag Laufásborgar á Evrópumeistaramót í grunnskólaskák í Króatíu í apríl.
Því býður hann nú 🌟 happdrættismiða 🌟 til sölu sem er stærsta fjáröflun ferðarinnar. 1 miði kostar 2.000kr en 3 miðar 5.000kr.
Áhugasamir geta skrifað komment hér eða haft samband við okkur foreldrana og við sendum ykkur allar upplýsingar og látum vinningshafa vita þegar dregið verður 18. apríl.
Vinningarnir eru stórglæsilegir og andvirði þeirra samtals komið vel yfir milljón króna og alltaf að bætast við fleiri, meðal annars gistingar með mat á Hótel Rangá, Hótel Sel Mývatni og víðar, gjafabréf á veitingastaði ofl ofl - sjá mynd!
Við værum svo þakklát fyrir stuðninginn ❤️
Áfram ungir íslenskir skák krakkar og stórkostlega skákstarfið á Laufásborg ♟️🇮🇸
Hákon dýrðar drengurinn
Duglegur og skýr
Stórurð, fjöll og firnindin
Fór fimm og hjartahlýr
Í nýjum skónum sporið greitt
Sæll mun arka víðar
Og vetrarlúffum alltaf heitt
Innan skammrar tíðar!
Hákon okkar sex ára í dag og voru fjallgönguskór, svefnpoki og lúffur efst á óskalistanum! ⛰️