Smá hár minningar yfir árið. Takk fyrir allt traustið, spjöllin, gleðina og leyfa mér að fá að vera partur af því. Þið eruð einfaldlega best❤️ gleðilegt hár
2025 🆚 2024
Ár á milli mynda - á fyrri myndinum nýbyrjuð í lyfjameðferð í brjóstakrabbameinsmeðferð og á seinni myndunum er gengin langt með barnið okkar, korter í fæðingu. Í sömu kápu sem er listilega hönnuð af Sigríði Ágústu.
Það er frekar absúrd að horfa á þessar myndir hlið við hlið. Ég var svo stolt af líkamanum mínum á meðgöngunni, í fæðingunni og eftir fæðingu. Það hafði ekkert með útlitið að gera heldur var það upplifunin af kraftaverkinu að ganga með, og fæða barn. Ég elskaði líkamann minn enn meira eftir þessa reynslu.
Svo greinist ég tæplega ári síðar með brjóstakrabbamein, enn með barnið á brjósti. Fyrstu viðbrögðin mín voru að vera sár og vonsvikin út í líkamann, að hann hafði brugðist mér og því fylgdi reiði. Eitt af verkefnunum hjá mínum yndislega markþjálfa og vinkonu minni @berglindsunnas er að vinna úr þessum tilfinningum. Að beina athyglinni í áttina að því að hugsa vel og fallega til líkamans. Líkaminn var aðeins að ruglast þarna á timabili, svona varð útkoman en við ætlum að gera allt til þess að hjálpa honum í gegnum þetta bataferli. Hugsa vel um sig, með góðu mataræði, hreyfingu, sýna sér mildi, læra að slappa af (sem hefur verið erfitt fyrir mig) og hvílast vel.
Mínu fyrstu viðbrögð voru alls ekki að hugsa svona til líkamans en ég trúi því að allir þessir þættir og hugarfarið skipti svo gífurlega miklu máli í þessu verkefni. Að leyfa slæmu tilfinningunum að koma, gefa sér tíma í að vinna úr þeim en svo finna svo uppbyggilegan farveg. Líkaminn, hugarfarið og læknavísindin eru mögnuð liðsheild og með því að sameina kraftana frá öllum þessum þáttum trúi ég því að við sigrum þetta saman að lokum.
Takk Sunna Ben fyrir að fanga þessi tvö augnablik á svona fallegan hátt
📸 @sunnaben
🪡 @sigriduragusta
💇 @irisloa
💄 @sunnabjorkmakeup