ár snáksins senn á enda er
þvílíka þakklætið sem ég upplifi þegar ég lít yfir farinn veg og liðna daga,
langa sem stutta, fylltir af tárfossum og hlátursköstum, trega og þrautseigju
augun, heilinn, sálin opnari en nokkurn tímann áður
ysta lag húðar kastað af hjá mörgum og augljós hamskipti geta byrjað að eiga sér stað
hér er einungis brotabrot af nokkrum góðum augnablikum sem ég færi ykkur
en eigi að síður verður hver með sjálfum sér lengst að fara - gleðilegt nýtt ár !