Una Torfa slær botninn í tónleikadagskrá Reykjavík Folk Festival 2026 laugardagskvöldið 21. mars kl. 22:00 í IÐNÓ.
Miðasala er í fullum gangi á tix.is (link in bio).
Una Torfa er lagasmiður og söngkona úr Vesturbænum sem semur lög á íslensku um ástir, höfnun, hjartasár og hamingju. Textarnir eru fjölbreyttir og taka á ýmsum hliðum margslunginna tilfinninga. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum. Laglínurnar dansa í takt við textana sem Una syngur á meðan hún spilar á gítar og píanó.
Una hefur verið tilnefnd til ýmissa verðlauna og hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin í tvígang, sem söngkona ársins 2022 og flytjandi ársins 2024. Fyrsta plata Unu „Flækt og týnd og einmana“ hlaut Kraumsverðlaunin 2022 og platan „Sundurlaus samtöl“ var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og var valin poppplata ársins 2024 af Morgunblaðinu.
@unatorfa@icelandsync@idno.rvk@reykjavikmusiccity@icelandmusic
#reykjavikfolkfestival2026
#reykjavikfolkfestival #icelandmusic #folk #festival
Kæru vinir, viðskiptavinir og samstarfsfólk!
Við hjá Iceland Sync óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þökkum kærlega fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Sjáumst hress á því nýja!
Airsongs Day 3.
Þessar lagahöfundabúðir líða alltaf allt of hratt. 25 lög voru samin af 21 þáttakendum í ár og við getum ekki beðið eftir að sjá hvar þau enda, vonandi sem flest útgefin á næstu misserum! 🙌
Takk öll sem tókuð þátt og takk @steftonlist , @icelandmusic / Tónlistarsjóður og @orkaorkaorkaorka fyrir ómetanlegan stuðning! 🎉🫶
AIRSONGS DAY 1.
Frábær hópur fólks frá Íslandi, Þýskalandi, Póllandi, Slóvakíu og Danmörku er byrjaður að semja geggjaða nýja tónlist! Takk @mantikmusicgroup og @hyper.soda 🫶
@steftonlist@orkaorkaorkaorka@icelandmusic standa við bakið á okkur enn eina ferðina og þeim erum við afar þakklát. Þetta væri ekki hægt án þeirra! 👏
Hátíðartónleikar Bríetar
Tónlistarkonan Bríet ætlar að halda hátíðlega desember tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík 12. desember næstkomandi. Ásamt henni verða hljóðfæraleikararnir Magnús Jóhann, Bergur Einar og Þorleifur Gaukur og saman ætla þau að skapa einstaka og hátíðlega stemningu. Tónleikarnir verða kósý, vinalegir og skemmtilegir.
Tónleikarnir verða haldnir:
12. desember í Fríkirkjunni í Reykjavík kl 21:00 - Hús opnar kl 20:30.
Á efnisdagskrá verða gömul og ný lög Bríetar ásamt vel völdum jólalögum. Ekki missa af þessu tækifæri til þess að losna frá öllu stressinu í aðdraganda jólanna og hlusta á ljúfa tóna.
🎶 Reykjavik czeka na polskich songwriterów!
Iceland Songwriting Camp od 3 do 5 listopada 2025!
➡️ 2 songwriterów z Polski, 12 songwriterów z krajów skandynawskich – razem w małych zespołach będą tworzyć muzykę i wymieniać się doświadczeniem.
Myusic Export Poland zapewni:
✈️ przelot Warszawa–Reykjavik–Warszawa,
🏠 noclegi w Reykjaviku (2-6 listopada),
Zgłoszenia do 19 do września. Ogłoszenie wyników: 24 września.
🔗 Formularz zgłoszeniowy w bio!
To szansa na networking, rozwój i międzynarodową współpracę. Nie przegap!
#MusicExportPoland #songwritingcamp #IcelandSongwritingCamp #songwriting #CEEartists #networking #internationalcollaboration
Tónleikar í @hljomaholl mánudaginn 15 September! Ég ætla mér loksins að stíga á stokk og spila lög af plötunni sem kom út í fyrra ásamt óútgefnu efni
Með mér á sviðinu verða @thortheyr@grybos02@rikki_steinn_ og @lukasthor03
Hægt er að kaupa miða hér⬇️
https://tix.is/event/19944/anya-shaddock
📸: @snjokallinn