STEF

@steftonlist

Hlutverk STEFs er að standa vörð um höfundarétt tónhöfunda og innheimta fyrir þeirra hönd gjöld fyrir opinbera notkun tónlistar hvarvetna.
Followers
981
Following
151
Account Insight
Score
25.44%
Index
Health Rate
%
Users Ratio
6:1
Weeks posts
Vorglaðir músíkantar komu saman og þáðu veitingar við athöfn að Laufásvegi 40 í liðinni viku, þegar afhentir voru styrkir úr fjórum sjóðum STEFs. Einn styrkþega, Hafsteinn Þráinsson, flutti við þetta tækifæri tvo frumsamda ópusa, viðtöddum til ánægju og yndisauka. Nótnasjóður úthlutaði 14 styrkjum, samtals 5.7 milljónum. Úr Upptökusjóði var úthlutað 7.7 milljónum í 39 styrkjum (þar af 8 nýliðastyrkir). Stórverkasjóður úthlutaði 2.2 milljónum í tveimur styrkjum. Að lokum var úthlutað sjö styrkjum úr Tónheilsusjóði, samtals 6 milljónum. Alls var á þessu vorsíðdegi úthlutað 21.7 milljónum króna.
27 0
4 days ago
Á dögunum var „Langspil“ ársins afhent, en það eru sérstök verðlaun STEFs, árlega veitt höfundi sem skarað hefur fram úr og náð eftirtektarverðum árangri á nýliðnu ári. Verðlaunin að þessu sinni hlaut ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON, sem á undanförnum árum hefur verið einn eftirsóttasti upptökustjóri og lagasmiður landsins. Það má segja að Þormóður sé einn af þessum ómissandi lykilmönnum „á bak við tjöldin“, sem við heyrum ekki alltaf um eða áttum okkur á. Listafólk eins og Hr. Hnetusmjör, Aron Can, Birnir, Emmsje Gauti, Friðrik Dór, Jói P & Króli og GDRN — svo einhverjir séu nefndir — eiga það öll sameiginlegt að hafa unnið og samið tónlist í náinni samvinnu við smellasmiðinn Þormóð. Hann hefur einstakt lag á því að semja músík sem nær til fólks. Þar blandast saman náttúrulegir hæfileikar og mikil og markviss vinna, en hann hefur greint frá því að hann geri eigin rannsóknir þegar lögin eru á teikniborðinu; athugi hvort þau virki og hreyfi við fólki og slípar þau síðan til eftir því sem honum þykir þurfa. Þótt Þormóður sé lítt þekktur meðal almennings og geti gengið óáreittur um ganga Kringlunnar, þá er óhætt að fullyrða að hver einasti Íslendingur — a.m.k. undir fimmtugu — þekki lög eftir hann, sem þau hafa ýmist heyrt í útvarpi eða úti á lífinu á undanförnum árum. Við óskum Þormóði til lukku og vonumst til að viðurkenningin verði honum hvatning og innblástur að fleiri smellum. Meðfylgjandi myndir tók Þórdís Erla Ágústsdóttir.
18 1
6 days ago
Helga Guðný Sigurðardóttir tók nýlega við starfi sölu- og innheimtustjóra hjá STEFi. Hún hefur BA-próf í frönsku, diploma í fjármálum og rekstri og MBA-gráðu frá HR. Áður hefur hún m.a. starfað hjá Landsteinum, Nýherja (Origo) og Motus. Við bjóðum Helgu Guðnýju hjartanlega velkomna til starfa fyrir tónhöfunda.
1 0
13 days ago
Í dag var Björgvin Halldórsson kvaddur við eftirminnilega athöfn í Hallgrímskirkju. Á hartnær 60 ára ferli hljóðritaði Björgvin hátt í þúsund lög og skilur því eftir sig afar djúp spor í íslenskri tónlistarsögu. Fáir ljáðu sönglögum stærri eða sterkari vængi og vigt en Björgvin og lukkulegur var hver sá höfundur sem fékk lag hljóðritað af Bo. Sjálfur var hann reyndar lunkinn lagahöfundur og komu nokkrir smellanna úr hans ranni. Björgvin lét sig félagsmál nokkru varða og sat um tíma í fulltrúaráði STEFs. Árið 2011 var hann sæmdur heiðursmerki samtakanna fyrir sitt drjúga framlag. Við drúpum höfði í dag, þökkum fyrir Bo og sendum hans nánasta fólki hugheilar samúðarkveðjur.
26 0
18 days ago
Vigdís Hafliðadóttir hélt söngtextanámskeið í höfuðstöðvum STEFs á mánudaginn, en hún er í forgrunni á meðfylgjandi sólarsjálfu. Námskeiðið þótti vel lukkað og komust færri að en vildu. Við þökkum henni og þátttakendum fyrir komuna á Laufásveginn, á þessum fyrsta væna vordegi ársins. Stefnt er að því að halda fleiri námskeið af þessu tagi á komandi árum. Svo orti Steinn Steinarr um vorið: Ó, sláðu hægt, mitt hjarta, og hræðst ei myrkrið svarta. Með sól og birtu bjarta þér birtist vor á ný.
6 0
25 days ago
Fulltrúaráðskosningar eru nú afstaðnar og niðurstaða liggur fyrir. Stjórn STEFs þakkar öllum frambjóðendum heilshugar. Það er ánægjulegt að finna til þess að í hópi höfunda séu margir viljugir til að bjóða fram krafta sína og sinna trúnaðarstörfum fyrir kollega sína. Nýtt fulltrúaráð STEFs (2026-2028) er þannig skipað: Andri Ólafsson (FTT) Anna Gréta Sigurðardóttir (FTT) Árni Páll Árnason (utan félaga) Barði Jóhannsson (FTT) Bergrún Snæbjörnsdóttir (TÍ) Bergur Þórisson (utan félaga) Halldór Smárason (TÍ) Hallur Ingólfsson (FTT) Hildigunnur Rúnarsdóttir (TÍ) Hrafnkell Pálmarsson (FTT) Karl Olgeirsson (FTT) Karl Örvarsson (utan félaga) Klara Ósk Elíasdóttir (FTT) Logi Pedro Stefánsson (FTT) Magnús Jóhann Ragnarsson (utan félaga) María Huld Markan (TÍ) Óttarr Proppé (utan félaga) Sóley Stefánsdóttir (FTT) Þuríður Jónsdóttir (TÍ)
0 0
1 month ago
Kosningu til fulltrúaráðs STEFs lýkur á miðnætti í dag, 12. apríl! Hún fer fram með rafrænum hætti og styðst við rafræn skilríki. Atkvæðisbærir meðlimir hafa fengið sendan rafpóst með leiðbeiningum. Hafið í huga, að möguleiki er að póstsendingar hafi ratað í rusl- eða ‘promotion’-pósthólf. Við hvetjum höfunda til að nýta kosningaréttinn.
0 0
1 month ago
Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, fagnaði sjötugsafmæli í liðinni viku og hélt af því tilefni tónleika í Háskólabíói. KK fæddist og bjó fyrsta áratug ævinnar í Bandaríkjunum, því næst í ríflega áratug hér heima, en fluttist svo til Svíþjóðar og bjó þar í um 13 ár. Fljótlega eftir heimkomu, seint á níunda áratugnum, fór að bera á Kristjáni í músíkinni hér heima. Hann vakti fljótt athygli fyrir taktfasta og hrífandi spilamennsku og honum fylgdi ferskur andvari, þótt hann væri þá kominn yfir þrítugt og að tónlistin hvíldi á gömlum blús- og soul-grunni. Fyrsta platan, „The Lucky One“, kom út árið 1991 og ári síðar „Bein leið“, sem sló rækilega í gegn. Síðan komu plöturnar ein af annarri og Kristján hreif landa sína á næstu áratugum með hreinni og beinni framkomu og einlægu fasi, en segja má að lög hans og textar beri einnig flest þau einkenni. Stjórn STEFs fannst vel til fundið að heiðra KK á þessum tímamótum. Laumuðust fjórir stjórnarmenn uppá svið Háskólabíós og veittu honum heiðursmerki samtakanna, með hjartans þökkum fyrir hans væna framlag til íslenskrar tónlistar í gegnum árin. Myndir tók Þórdís Erla Ágústsdóttir.
13 0
1 month ago
Kosningaáminning! Kosning til fulltrúaráðs STEFs 2026-28 stendur nú yfir. Hún fer fram með rafrænum hætti og styðst við rafræn skilríki. Atkvæðisbærir meðlimir hafa fengið sendan rafpóst með leiðbeiningum. Hafið í huga, að möguleiki er að póstsendingar rati í rusl- eða ‘promotion’-pósthólf. Við hvetjum rétthafa til að nýta kosningaréttinn. Kosningin verður opin til miðnættis þann 12. apríl.
2 0
1 month ago
Í dag verður Hjálmar H. Ragnarsson jarðsunginn. Hjálmar var afkastamikið tónskáld og eftir hann liggur fjöldi verka; sönglög, hljómsveitarverk, kammerverk, kórverk og óperur, auk þess sem hann samdi nokkuð fyrir leikhús og kvikmyndir. Hjálmar lét sig mjög varða félagsmál og viðgang tónlistar á Íslandi. Hann sat fyrrum í stjórn STEFs, var formaður Tónskáldafélags Íslands og forseti Bandalags íslenskra listamanna, auk þess að vera fyrsti rektor Listaháskóla Íslands. Fyrir rúmu ári var Hjálmari veitt heiðursmerki STEFs. Stjórn STEFs þakkar Hjálmari atorku og atfylgi og sendir aðstandendum hugheila samúðarkveðju.
12 1
1 month ago
Við bendum á að nú er galopið fyrir umsóknir í Upptökusjóð, Nótnasjóð, Stórverkasjóð og hinn nýja Tónheilsusjóð. Umsóknarfrestur er til 10. apríl. Sótt er um í gegnum „Mínar síður“ á stef.is. Þar er einnig allan fróðleik að finna um sjóðina. Upp með sokkana, inn með umsóknir, áfram íslensk tónlist!
3 0
1 month ago
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í gær. Plötur ársins 2025 eru þessar: A Matter of Time (Laufey) All is Love and Pain in the Mouse Parade (Of Monsters and Men) Dyrnar (Birnir) QUACK (Gugusar) Quiet Presence (Sævar Jóhannsson) Crossing Borders (Ásgeir Ásgeirsson) Where is Jón? (Úlfur Eldjárn) Opus 109: Beethoven, Back, Schubert (Víkingur Heiðar Ólafsson) Lög/verk ársins eru: Eitt af blómunum (Páll Óskar og Benni Hemm Hemm) 10 ÞÚSUND (Emmsje Gauri og Króli) Ordinary Creature (Of Monsters and Men) Day Old Thoughts (Árný Margrét) In the Sound of Breathing (SAGES) Watachico (Watachico) Before We Fall (Anna Þorvaldsdóttir) 'Eitt af blómunum' er texti ársins. Söngvarar ársins voru þær Laufey, Silva Þórðardóttir og Hanna Dóra Sturludóttir. Bjartasta vonin var útnefnd Sara Mjöll Magnúsdóttir. Heiðursverðlaun ársins hlaut hljómsveitin Todmobile, sem starfað hefur með hléum frá árinu 1989. Eftir að hafa móttekið verðlaunagripinn flutti sveitin tvö lög af miklum krafti. Um fleiri verðlaunahafa má fræðast á vefsíðu ÍTV: www.iston.is/frettir/verdlaunahafar-2026
18 0
1 month ago