@hananu.is

Búðu til þitt eigið veðurkort á vedurkort.is
Followers
89
Following
3
Account Insight
Score
16.01%
Index
Health Rate
%
Users Ratio
30:1
Weeks posts
nú er nýr íslenskur stofuhátalari eftir @jonholmgeirs og @halldorel . Hönnun hans miðar að því að vekja okkur inn í núið og vera til staðar þegar við hlustum á tónlist. Framhliðin er einstök fyrir hvern hátalara en í hana er skorið mynstur sem byggt er á þverskurðum íslenskra birkitrjáa. Hljómburður hátalarans mótast af viðnum og samblands mismunandi hátalarakeilna. Hann ljær hljóðinu þrívíðan blæ með lögun sinni og bætir lífrænni vídd við hljóminn. Markmið nú er að tengja okkur á ný við tónlistina gegnum efnisheiminn, tenging sem var til staðar en hefur dofnað eftir sem tækninni fleygir fram. @designmarch @hananu.is - nú is a new Icelandic home audio speaker, designed around the act of listening. Designed by Jón Helgi Hólmgeirsson and Halldór Eldjárn. The front face of each speaker is uniquely carved from birch, its mesh pattern drawn from the grain and growth of Icelandic trees. No two are alike. The wood shapes the sound as much as it shapes the form, lending warmth, depth, and a spatial openness that manufactured enclosures rarely achieve. We made nú because something has quietly slipped away. Music is everywhere now, and somehow harder to actually hear. nú is a way back into it: a physical thing, rooted in natural material, that asks you to sit down and pay attention 📷 @hordursveinsson
202 3
13 days ago
Takk fyrir alveg frábærar viðtökur! Það er augljóst að Íslendingar eru einstaklega áhugasamir um veðrið. Þetta var stór helgi í veðurkortaviðskiptum og meira en nóg að gera hjá prentsmiðjunni @svansprent enda snjóaði pöntunum stöðugt inn. Þær hafa nú fokið áleiðis í pósthólf viðtakenda og meira á leiðinni! PS: föstudagstilboðið er enn virkt og mun halda aðeins áfram. Nú er tækifærið!
44 0
5 months ago
Litla veðurkortagerðin mín er komin á fullt! Hér er smá kynning og leiðbeiningar hvernig þú getur búið til þitt eigið veðurkort og fengið sent heim að dyrum! Stærðirnar sem eru í boði eru A4, A3 og A2. Kortin koma upprúlluð í hólk og eru bleksprautuprentuð í hæstu gæðum hjá Svansprent.
73 0
6 months ago
Veðurkortin koma upprúlluð í hólki heim að dyrum eða í póstbox. Hér má sjá Svansprentarana að störfum, hvílíkt handbragð!
52 0
6 months ago
Ætlar þú að taka trampolínið niður? Takk kærlega fyrir viðtökurnar á vedurkort.is. Pöntunum snjóar inn en ég fékk þau skilaboð frá prentsmiðjunni áðan að fyrsta holl af pöntunum fer úr húsi á morgun vegna veðurs. Maður veit aldrei hvaða veður er í kortunum!
106 0
6 months ago
Veðurfréttir hafa leikið stærra hlutverk í mínu lífi en gengur og gerist. Mamma sagði lengi veðurfréttir í sjónvarpinu og ég beið alltaf spenntur við sjónvarpið þegar hún var á vakt. Þá voru veðurkortin handgerð af veðurfræðingi sem teiknaði þau og stillti upp í höndunum, á pappír. Gular og gráar sólir, vindstig og svo allskonar tákn voru límd á útprentað Íslandskort. Mamma gerði líka stundum broskalla eða jólasveina á sólirnar og ég tók þeim alltaf sem alveg sérstökum skilaboðum til mín. Ég fékk oft að fara með mömmu í vinnuna uppi á spádeild og þá var aðal skemmtunin að fá að sitja við ljósborðið með tóm veðurkort og líma á það allskonar sólir, fárviðri og teikna bull inná. En upp úr 2000 tók tölvutæknin við, kortin urðu gráleit og stöðluð, og á sama tíma hurfu broskallarnir og jólasveinarnir. Þetta þótti mér afar sorglegt, og þykir í raun enn. Ég tilkynni því formlega um opnun vefsíðunnar vedurkort.is þar sem maður getur búið sér til veggspjald af veðrinu á tilteknum degi, pantað það og fengið útprentað, sent heim að dyrum! Hágæða Svansvottað bleksprautuprent frá Svansprent. Afhendingartími 3-5 virkir dagar. Tilvalin sem tækifærisgjöf eða stofustáss. Glöggir gestir taka eftir því að salan fer fram í gegnum hananu.is en það er annað verkefni sem ég er með í pípunum og er mjög spenntur að segja frá betur frá.
224 6
6 months ago