Halldór Eldjárn

@halldorel

🥁 Icelandic composer ☁️ Founder @inorganic.audio
Followers
3,818
Following
2,134
Account Insight
Score
30.8%
Index
Health Rate
%
Users Ratio
2:1
Weeks posts
Veðurfréttir hafa leikið stærra hlutverk í mínu lífi en gengur og gerist. Mamma sagði lengi veðurfréttir í sjónvarpinu og ég beið alltaf spenntur við sjónvarpið þegar hún var á vakt. Þá voru veðurkortin handgerð af veðurfræðingi sem teiknaði þau og stillti upp í höndunum, á pappír. Gular og gráar sólir, vindstig og svo allskonar tákn voru límd á útprentað Íslandskort. Mamma gerði líka stundum broskalla eða jólasveina á sólirnar og ég tók þeim alltaf sem alveg sérstökum skilaboðum til mín. Ég fékk oft að fara með mömmu í vinnuna uppi á spádeild og þá var aðal skemmtunin að fá að sitja við ljósborðið með tóm veðurkort og líma á það allskonar sólir, fárviðri og teikna bull inná. En upp úr 2000 tók tölvutæknin við, kortin urðu gráleit og stöðluð, og á sama tíma hurfu broskallarnir og jólasveinarnir. Þetta þótti mér afar sorglegt, og þykir í raun enn. Ég tilkynni því formlega um opnun vefsíðunnar vedurkort.is þar sem maður getur búið sér til veggspjald af veðrinu á tilteknum degi, pantað það og fengið útprentað, sent heim að dyrum! Hágæða Svansvottað bleksprautuprent frá Svansprent. Afhendingartími 3-5 virkir dagar. Tilvalin sem tækifærisgjöf eða stofustáss. Glöggir gestir taka eftir því að salan fer fram í gegnum hananu.is en það er annað verkefni sem ég er með í pípunum og er mjög spenntur að segja frá betur frá.
224 6
6 months ago
how to make the THX movie sound! 😂 #soundeffect #vintagesynth #korg #polysix #oddlysatisfying #studio #sound
27.4k 54
2 years ago
gleymmérei music video is out now 🌿 full video on youtube #filmphotography #super8 #super16 #aaton #musicvideo #gleymmerei #iceland #icelandicmusic #forgetmenot
705 8
3 years ago
nú er nýr íslenskur stofuhátalari eftir @jonholmgeirs og @halldorel . Hönnun hans miðar að því að vekja okkur inn í núið og vera til staðar þegar við hlustum á tónlist. Framhliðin er einstök fyrir hvern hátalara en í hana er skorið mynstur sem byggt er á þverskurðum íslenskra birkitrjáa. Hljómburður hátalarans mótast af viðnum og samblands mismunandi hátalarakeilna. Hann ljær hljóðinu þrívíðan blæ með lögun sinni og bætir lífrænni vídd við hljóminn. Markmið nú er að tengja okkur á ný við tónlistina gegnum efnisheiminn, tenging sem var til staðar en hefur dofnað eftir sem tækninni fleygir fram. @designmarch @hananu.is - nú is a new Icelandic home audio speaker, designed around the act of listening. Designed by Jón Helgi Hólmgeirsson and Halldór Eldjárn. The front face of each speaker is uniquely carved from birch, its mesh pattern drawn from the grain and growth of Icelandic trees. No two are alike. The wood shapes the sound as much as it shapes the form, lending warmth, depth, and a spatial openness that manufactured enclosures rarely achieve. We made nú because something has quietly slipped away. Music is everywhere now, and somehow harder to actually hear. nú is a way back into it: a physical thing, rooted in natural material, that asks you to sit down and pay attention 📷 @hordursveinsson
201 3
12 days ago
eitt aukalíf - það eina sem mig langar í við vorum að gefa út nýtt lag! linkur í bio 🫶
90 0
15 days ago
tickle my brain (headphones on!) stratus → color play → liquid → 💆 only using inorganic audio plugins
41 5
2 months ago
Við RAKEL höfum ýmislegt brallað í gegnum tíðina en nýjasta brallið okkar var að koma út í dag, það er lag sem við sömdum við ljóðið HÉR eftir Brynju Hjálmsdóttur vinkonu okkar. Spólum aðeins til baka. Fyrir nokkrum árum datt okkur í hug að semja saman lög við íslensk ljóð. Okkur langaði að prófa að semja tónlist í alvörunni, eða öllu heldur að vera í sama herbergi við ýmis hljóðfæri og spila og syngja. Hvorugt okkar hafði gert mikið af því að semja tónlist á þennan hátt, enda bæði mikið að vinna í stúdíói eða spila á tónleikum. Eða bara semja einn með sjálfum sér. Það tók okkur smá tíma að ná upp rytma í þessu og þá var gott að geta stuðst við texta annarra. Undir lokin vorum við orðin svo sjóuð að nú er ekkert sem stoppar okkur í að semja ennþá fleiri lög saman! Til þess að fanga enn betur þessa lifandi stemmingu þá fórum við í stúdíó (Hljóðrita í Hafnarfirði) fyrir næstum sléttu ári síðan, með fríðu föruneyti – og tókum upp 6 lög við 6 ljóð. Við lögðum mikið upp úr því að klippa og eftirvinna sem minnst og höfðum því vit á að velja með okkur alveg ofboðslega klára tónlistar- og upptökumenn en það voru þeir Hilmar Jensson gítarleikari, Birgir Steinn Theódórsson bassaleikari, Styrmir Hauksson og Guðm. Kristinn Jónsson upptökumenn. Við pössuðum að hafa góða stemmingu (sem þýðir að vera með gott kaffi, taka langar kaffipásur og borða mikið af nesti) og töldum svo í lögin eitt af öðru. Nánast engar klippingar, bara spilað beint inn á tölvu. Eins tært og viðkvæmt og það getur verið. Við fundum öll mikla tengingu við tónlistina, tjáninguna og söguna sem óhjákvæmlega er sögð þegar tónlist er túlkuð á þennan hátt. Við drógum fram mennskuna, tilfinningarnar og lékum okkur með litina í tónlistinni og textunum. Þetta var satt best að segja alveg frábært augnablik. Signý Rós vinkona okkar festi þennan dag á gamla vídeóvél (því við erum svo gamaldags og það er svo gaman).
137 1
2 months ago
HÉR 20.02.26 ✍🏼 @hjalmsdottir 📹 @signy_ros
118 4
2 months ago
Svipmyndir af innlendum vettvangi
53 0
4 months ago
Vídeófónía 2025 💫 Margt sem gerðist á þessu ári. Það sem stendur auðvitað uppúr er hún Ylfa sem skaust brosandi í heiminn þann 22. mars. Af nógu er að taka, ég frumflutti Segulstorm með Tríó Sól, tók upp plötu með Rakel, spilaði á slagverk í tónlist fyrir sjónvarpsþætti, hélt tónleika með Sykri og Inspector Spacetime, setti vedurkort.is í loftið, náði miklum framförum í Afrek, hljóp hálft maraþon á besta tímanum mínum til þessa, átti magnaðar samverustundir með fjölskyldu og vinum á fallegum stöðum í Svarfaðardal, Svíþjóð, Danmörku og Noregi, samstörf og tilraunastarfsemi með fullt af hæfileikafólki í tónlist, hönnun, leikhúsi, kvikmyndagerð og forritun – sumt verkefni kláruð, enn fleiri að hefjast, og ótalmörg ný í vinnslu. Fallegast var að fylgjast með börnunum vaxa úr grasi, taka svona vel á móti litlu systur sinni – þvílík forréttindi að gera þetta allt með Hildi mér við hlið. Takk fyrir árið – svo margt komið á dagskrá fyrir 2026, fylgist með!
59 0
4 months ago
👶🥁
66 0
4 months ago
Takk fyrir dansinn! 💃🕺
75 0
5 months ago