Í dag er Alþjóðlegi hamingjudagurinn og ég er þakklát fyrir að 🇮🇸 sé númer tvö á lista yfir hamingjusömustu þjóðir heims, rétt á eftir frændum okkar í 🇫🇮 og deili hér í tilefni dagsins mynd frá sendiráði Finnlands @finlandiniceland 🫶
Í dag hitti ég forseta Ítalíu, Sergio Mattarella, á fundi og í hádegisverði í Róm. Við ræddum góð samskipti okkar vinaþjóða á sviði menningar-, viðskipta og stjórnmála og hvernig efla má þau enn frekar. Ræddum sömuleiðis stöðu og þróun á alþjóðavettvangi. 🇮🇸🤝🇮🇹
Það var mikil upplifun að taka þátt í 80 ára afmælishátíð Svíakonungs í gær 🇸🇪
Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum.
📸 Clément Morin/Kungl. Hovstaterna
Hjartans þakkir fyrir okkur @norbusangfestivalen 🙌
Þvílík gæsahúð að hlusta á yfir 300 börn og ungmenni frá Norðurlöndum frumflytja lag Tryggva M. Baldvinssonar og syngja íslenska ljóðatexta 🥰 Svo leyfði ég mér að syngja með í lokin þegar þau sungu mitt uppáhalds lag, Vikivaki 🫶
Það sem við megum vera þakklát fyrir allt okkar frábæra kórastarf og alla sem leiða samsöng, samvinnu og vináttu Norðurlanda 🙏🇮🇸🇸🇪🇳🇴🇩🇰🇫🇮
Í vikunni tók ég á móti fjórum nýjum sendiherrum á Bessastöðum - frá Perú, Serbíu, Namibíu og Kúveit. Frekari upplýsingar má finna á forseti.is
Á bak við hvert trúnaðarbréf eru ný tækifæri til samtals, samstarfs og sterkari tengsla milli þjóða. 🇮🇸🤝🇵🇪 🇮🇸🤝🇷🇸 🇮🇸🤝🇳🇦 🇮🇸🤝🇰🇼
75 ár af samtakamætti, von og umhyggju.
Það var mér heiður að setja aðalfund Krabbameinsfélags Íslands sem fagnar 75 ára afmæli í ár. Starf félagsins minnir okkur á að í baráttunni við krabbamein þurfa vísindin og kærleikurinn að haldast í hendur.
Þekking getur dregið úr ótta, samstaða unnið gegn einmanaleika og vonin skipt sköpum. Takk fyrir ómetanlegt starf í þágu sjúklinga og aðstandenda um allt land @krabbameinsfelag_islands 🙏
Það er einstaklega dásamlegt að sjá börn finna röddina sína. Í Klébergsskóla sögðu nemendur mér frá verkefni sínu um forseta Íslands 🇮🇸 með glærum, upplestri og fallegri framsögn. Ég varð bæði stolt og snortin af hugrekkinu og gleðinni sem fyllti salinn.
Við opnuðum líka Froskaleik - Skólameistarann 🐸 sem hjálpar börnum að þjálfa læsi, málhljóð og framburð á skemmtilegan hátt. Mér fannst áhugavert að Hoppi froskur missir röddina sína í leiknum og sagði krökkunum frá því þegar ég vaknaði sjálf raddlaus rétt fyrir fyrstu kappræður í forsetakosningunum 😄
Sem betur fer geta bæði forsetar og froskar fundið röddina sína aftur 🙏
Og kannski er það einmitt það mikilvægasta sem við getum gefið börnum: gleðina við lestur, trú á eigin rödd og orð sem geta opnað nýja heima.
Nánar um verkefnið: froskaleikur.laerumogleikum.is
📸 Birgir Ísleifur
Í höfuðstöðvum Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna í Róm urðu afleiðingar stríða óþægilega áþreifanlegar.
Hungur og neyð bitna sjaldnast fyrst á þeim sem standa að átökunum, heldur á börnum, fjölskyldum og óbreyttum borgurum.
Er þakklát starfsfólki fyrir lífsnauðsynlegt starf á tímum þegar þörfin er mikil og vaxandi og aðstæður afar krefjandi og einnig þakklát öllum sem leggja þeim lið! 🙏🕊️
📸 @worldfoodprogramme
Það var gaman að heimsækja menningarmiðstöðina Circolo Scandinavo á Aventino-hæðinni í Róm og ræða þar samstarf norrænna listamanna og rekast á kunnuglegt málverk af íslensk-danska listamanninum Bertel Thorvaldsen. Glöggir kannast mögulega við samskonar málverk úr anddyri Bessastaðastofu 👨🎨
Á forseti.is má sjá fleiri fréttir og myndir úr ferðinni og skoða listaverkin á Bessastöðum í sýndarheimsókn.