ANTONÍA BERG

@antoniberg

Leirkerasmiður Í leirangri allt sumar ✨ Founder of @mor_ceramicsstudio @augnablikin 🇵🇸
Followers
3,097
Following
3,057
Account Insight
Score
29.97%
Index
Health Rate
%
Users Ratio
1:1
Weeks posts
Á þessu ári hef ég ferðast um landið í leit að leir og öðrum jarðefnum. Hver staður býr yfir einstökum kröftum og efnum sem hafa mótast í samspili umhverfis, tíma og þrýstings. Bersýnilega búa magnaðir vættir um allt land. Snæfellsjökulormurinn sprettur úr landslagi þar sem jökull og eldfjall mætast. Þar er vikur og leir sem hefur myndast við magnaða endurkristöllun kísils. Úr þessum efnum má búa til glerung sem umlykur skúlptúrinn. Ormurinn varð til í vinnustofu Arctic Canvas undir Snæfellsjökli í maí 2025. Myndirnar frá sýningu @herma_rvk í lok ágúst ❤️ Ormurinn er til sölu ✨ Sérstakar þakkir Íris María Leifsdóttir, Arctic Canva, Glacier Paradise og allir í Herma ❤️ @irisleifs @glacier.paradise @arcticcanvas
0 14
8 months ago
Takk fyrir komuna á listamannaspjallið !! Það var meðal annars rætt um nördaskap í keramiki, íslensk og grænlensk leir efni og sjálfbærni í leirlist. #designmarch #leirlist
44 0
6 days ago
Verið hjartanlega velkomin á listamannaspjall með Antoníu Berg og Ólöfu Erlu, næsta sunnudag - 10. maí klukkan 15:00 í Grafíksalnum, Tryggvagötu 17. Viðburðurinn er haldinn í tengslum við sýninguna Í samsæti hlutanna, 45 ára afmælissýningu Leirlistafélagsins. Boðið verður upp á léttar veitingar, aðgangur ókeypis og öll velkomin. 📸Patrick Ontkovic
58 0
9 days ago
Takk fyrir komuna í dag ❤️ algjör heiður að sýna með svona mörgum hæfileikaríkum keramikerum! Sýningin er opin næstu daga til 24 maí í Grafíksalnum og svo verð ég partur af listamannaspjalli á sunnudaginn klukkan 15:00-16:00! 🐉
102 2
10 days ago
Styttist í Hönnunarmars!! Hlakka mikið til að sýna ykkur Gersemar drekana Ég hef verið að hugsa um hvað gersemi er í mínum augum, verndarenglar (dreka landvættur), tengingu anda og muna sem er vart að passa uppá og jafnvel óska sér með. Hlutir og verur sem gefa okkur tækifæri á að endurspegla okkur í nærumhverfinu og hvað öll augnablik eru einstök. Það er magnað að manneskja sem er skapandi tekur þátt í umbreytingum innan um hringrás sem heldur áfram í endalausu flóði tímans. Eitthvað sem knýr okkur áfram að vera forvitin og með hverjum stað og jarðefnunum eru nýjar og gamlir andar sem birtast okkur. Opnun í Grafíksalnum 7unda 17:00 - 20:00 Í Samsæti hlutana | Leirlistafélag Íslands í 45 ár Sýningarstýrt af Agnesi Ársælsdóttur @designmarch @leirlistafelag_islands @islenskgrafik
0 3
15 days ago
Hversu fullkominn dagur uppá Breiðamerkurjökli í gær með henni @poza.miastem 🩵 Fórum að leita að leir og tala um hegðun jöklana á þessu bráðnunar tímabili þeirra ~ það var fullt af jökulleir ösku og skemmtilegum verum með okkur Þakklát 🦋
215 10
22 days ago
Leirangur 15.04.2026 Fór að Svínafellsjökli í fyrradag til að skoða hvernig jökulsporðurinn kemur undan vetrinum, magnað að sjá hvað margt hefur breyst frá því ég fór síðast (haust 2025) Sporðurinn er byrjaður að teygja sig í áttina á tjörninni sem liggur bakvið jökulgarðinn með risa vaxna anga sem rísa um það bil 5 metra hátt og gægjast yfir á sveitina fyrir neðan. Jökulleirinn er einnig búin að blandast við urð og grjót en hægt er að finna þykkan blautan leir í dældum vestan við sporðin þar sem hækkandi sól og hlýrra veðurfar ýtir undir bráðnun hans. Ég ákvað að fara ekki uppá jökulinn ein þrátt fyrir að hafa allan búnað og yndislegt veður í virðingu við leysingarnar og breytt landslag. Dvaldi um tvo tíma að teikna, skrifa, syngja og safna efnum fyrir komandi flísaprufur. Hér er brot af kvæði sem ég samdi - innblásið af hinu fræga kvæði Lækurinn og er lagboðinn sá sami Ég er að horfa hugfangin Í hlýjum sólarblænum Yfir fagra jökulinn Sem líður framhjá hæðum Breið og brotin tungan er Bráðnandi í tímans flóði Leirinn losnar og vatnið fer Leysingar valda hljóði 💧
0 2
29 days ago
Íris María tók á móti Landanum og talaði um stuttmyndina okkar Augnablik af jökli “Moments of a Glacier” sem er sýnd í Listasafni Árnesinga í Hveragerði um þessar mundir. Stuttmyndin er af bráðnandi Sólheimajökli og öllu því sem leynist innan hans. Vert er að tala um jöklana okkar hér og í Grænlandi. 🩵 Sermit samanstendur af Alberte Parnuuna Antonía Bergþórsdóttir Íris María Leifsdóttir Vikram Pradhan @ruvlandinn @laartmuseum_iceland
40 1
1 month ago
Undirbúningur fyrir Hönnunarmars ✨ Gerdemar drekans þar sem ég er að flétta saman draumkenndum hugmyndum, handverki og íslenskum leir 🐉🩵 Hlakka til að sýna með öllum frábæru leirkerasmiðum í Leirlistafélagi Íslands í SÍM við Hafnarstræti yfir Hönnunarmars 🌹 Myndbandið er eftir hana Alberte Parnuuna ❤️ @leirlistafelag_islands @simresidency @designmarch @alberte.parnuuna @mor_ceramicsstudio @haushaus.haus
66 2
1 month ago
Málað með jökulleir á Alþjóðadegi jökla 21. mars. Listasmiðjan fer fram í Hveragerði á @laartmuseum_iceland á laugardaginn kl. 14-16 Ég og @antoniberg @augnablikin höfum sótt jökulleir frá mismunandi jöklum og munum leiða listasmiðjuna. Við erum með myndband á sýningu með @sermit_joklar @alberte.parnuuna og @vikrampradhan_ af jökulís frá Sólheimajökli í nærmynd
0 0
1 month ago
Fort Kochi ✨ þvílíkur drauma staður og alveg yndislegt að vera hjá henni Þóru í leynilundi (The Secret Garden) svo gott að koma í faðmlag góðra kvenna eftir 22 daga í Panchakarma í Backwaters. Það var gaman að sjá fjölbreytta list á Biennale-inum sem var heppilega í gangi á meðan dvölinni stóð og gaman að fá að gægjast inn í sköpunarferli annarra listamanna. Ég ber með mér hugmyndir af verkum og aðferðum sem hafa verið með mér fyrir og komið skýrara fram í þessari ferð á mismunandi máta, ég hlakka til að blása lífi í þær þegar ég kem heim ❤️ Kemur smá meira frá Indlandi áður en ég sný mér að Bali þar sem ég er nú
175 8
2 months ago
Last April, I was on my way to East Iceland with @antoniberg and @irisleifs as part of our collaborative project @sermit_joklar , when I received an email saying I’d advanced to the second round of a film school application. That meant making a short film and writing a paper within a very limited timeframe. We had already planned to stay in Berunes for a few days, which gave me one evening to write and plan the film with fixed objectives and length, one day to shoot, and a few evenings to edit and finish the rest of my application. Even though I didn’t get admitted, I learned a lot from the process. Especially from directing dialogue with inexperienced actors in a language I don’t speak. And most importantly, we had so much fun making Berunes (2025) together. The film was screened at @augnablikin 's exhibition Samtíningur Gathering at @hafnar.space in December 2025. Sometimes the process matters more than the outcome.
57 4
3 months ago