LÍF styrktarfélag stendur fyrir Lífssporinu götuhlaupi sem fer fram þriðjudaginn 19. maí kl.18:00 og er ræst við Braggann í Nauthólsvík.
Í ár rennur allur ágóði af hlaupinu í söfnun fyrir nýju leghálsspeglunartæki.
Hægt er að skrá sig í 5 km og 10 km hlaup með flögutímatöku ásamt 3 km göngu/skemmtiskokki án tímatöku.
Við hvetjum alla til þess að skrá sig en Sjóvá styrkir Líf um 1.000 kr. fyrir hvern þátttakanda í Lífssporinu.
Þín skráning telur❤️
Stoked to officially join the @never.second team 🚀
The best thing I’ve tried for a sensitive gut, and I find the higher sodium content really helpful. Finally able to fuel 90g carbs per hour with gels and drink mixes that actually taste good 😋
This winter was the first time I’ve properly fueled during my sessions and long runs, and I can already feel the difference. Excited to take that work into race season this summer 🏔️
The high carb train is leaving the station…get on board or get dropped 🚂
Það var góð stemning í morgun þegar við skelltum upp óvæntum pop up bás fyrir útivistarfólk og hlaupara sem voru mætt á Esjuna snemma morguns í grenjandi rigningu!
@braudogco 🥐
Árlega 1.maí fjölskylduganga Útilífs í Búrfellsgjá með frábærri leiðsögn frá @kollab - góð mæting og ekkert smá duglegir krakkar að ganga⛰️hlökkum til að sjá ykkur aftur að ári!
Nú er búðin okkar í Skeifunni komin í sumar búning en við erum með fullt úrval af öllu sem þú þarft fyrir útivistina í sumar.
Í kvöld vorum við með fræðslukvöld fyrir starfsfólkið okkar þar sem við fórum vel yfir útivistarbúnað fyrir sumarið - allt gert til þess að tryggja það að við veitum framúrskarandi og fagmannlega þjónustu þegar þú mætir til okkar fyrir ævintýri sumarsins☀️
Útilíf býður til fjölskyldugöngu föstudaginn 1. maí kl. 11:00
Kolbrún Björnsdóttir, fjallkyrja og útivistarkona, leiðir fjölskyldugöngu í Búrfellsgjá, eina af fallegustu og aðgengilegustu gönguleiðum höfuðborgarsvæðisins.
Gangan hefst við bílastæðið Hafnarfjarðarmegin á Heiðmerkurvegi, við enda Vífilsstaðarhlíðar. Eftir gönguna býður Útilíf þátttakendum upp á grillaðar pylsur og hressingu, á meðan birgðir endast. Þátttakendum gefst einnig kostur á að skrá sig í pott og vinna glæsileg útdráttarverðlaun frá Útilífi.
Búrfellsgjá er skemmtileg og þægileg leið sem hentar allri fjölskyldunni og er sérstaklega góð ganga fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í göngum. Gengið er eftir malarstíg um 2,5 km leið að gígnum sjálfum. Þeir sem vilja halda áfram upp á gíginn fara upp smá brekku sem flest ættu að ráða vel við. Á toppnum bíður fallegt útsýni yfir Helgafell, Bláfjöll og fleiri tinda.
Á leiðinni má meðal annars sjá gamla rétt, litla hella og stórar gjár sem gaman er að skoða. Heildarvegalengd göngunnar er um 5 km, en auðvelt er að snúa við hvenær sem er.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Við hjá Útilíf kvöddum veturinn á Andrésar Andar leikunum á Akureyri sem voru vel heppnaðir og til fyrirmyndar í framkvæmd líkt og undanfarin ár. Það var sérstaklega gaman að sjá efnilega unga skíðaiðkendur í brekkunum og voru LEKI stafirnir skemmtilega áberandi.
Við viljum þakka öllum þeim sem lögðu leið sína í Útilíf þennan veturinn fyrir viðskiptin og samveruna. Við hlökkum til að taka á móti ykkur aftur á næsta tímabili⛷️
Hreyfum okkur 100 kílómetra í maí og mætum sumrinu vel undirbúin.
Þú velur hvað hentar þér best og getur blandað saman mismunandi hreyfingu, allt telur!
Skráðu þig til leiks inn á utilif.is/100km