🇮🇸 Just wow.
Our glaciers are not only a great place to explore but also a fantastic place to sharpen fundamental mountaineering skills we use in the big mountains. These awesome girls are headed to Chamonix in a month where they are going to climb Mont Blanc 🗻 Today we explored Falljökull, got our tools out, ice climbed and worked alot on crampon technique and travelling in difficult terrain.
It's awesome to be a part of jet another big mountain project of theirs. Tomorrow holds another adventure for us 👌🧗♀️
@soffiasigurgeirs@birnabraga@baramjoll@holmfridurvalasvavars
Að hugsa sér að sitja við skrifborðið að vinna og að geta 7 mínútum síðar verið lögð af stað upp þennan fallega foss.
It's pretty crazy that one minute I'm at my desk working, but within 10 minutes, I can be outside climbing this awesome waterfall.
📸 @addidesan@tindaborg
#iceclimbing
#Iceland #northface #thenorthface #petzl_official
First ice climbing of the season, this time in sunny Skaftafell where you not only get good ice but you can also climb without a hat and belay without gloves! 🫶
Great day out, finished with a well deserved blueberry pint at our favourite coffee house as a celebration of finishing the semester in the university. Now Árni only has a few months left before he can call himself a teacher ⭐️ (since I don't have a masters degree yet, I have 1.5 years to go) 🙃
Að fá að kenna við @fjallamennskunamfas er eitt mesta gæfuspor sem hefur hent mig 🏔 🤍
Alpaferðin að vori er uppáhalds áfanginn minn. Hér ferðumst við um stórbrotið Öræfskt landslag og í ár fengum við þvílíka veðurblíðu (enda er alltaf gott veður þegar þessi hópur kemur í Öræfin).
Við höfum undanfarin 2 ár gengið upp á Hrútsfjallstinda og gist milli tindanna í tvær nætur. Svo göngum við yfir Svínafellsjökul og inn að Tindaborg og Hnjúknum og tjöldum efst á skíðaleiðinni á fallegasta tjaldsvæði landsins. Síðasta daginn göngum við niður meðfram Hvannahrygg niður á Virkisjökul. Trakkið eftir þessa ferð er mjög töff.
En að pólitík..
Þetta haust er vægast sagt búið að vera krefjandi. Við erum búin að vera í algjörri óvissu með framhaldið þangað til í þessari viku þegar við fengum loksins grænt ljós að við fáum að klára þetta skólaár. Í framhaldinu er verkefnið okkar að tryggja að námið fái fjármagn til framtíðar.
Áfram gakk og áfram fagmennska á fjöllum.
Takk @hallahrundlogadottir fyrir hjálpina!
Lofoten 🪨
Dagurinn á Presten (Vestpillaren direkt) með Árna og Óla mun aldrei gleymast. Það er ekki alltaf auðvelt að fara í ævintýri með þessum nöglum en mikið svakalega er það gaman og mikið er ég lánsöm að fá að vinna og leika með þeim.
Lofoten er ótrúlegur staður og klifrið er æðislegt. Þangað fórum við með @fjallamennskunamfas og klifruðum í rúma viku með 12 nemendum 🗻
Ferðin með stelpunum uppá Tindaborg var með þeim fyndnari sem ég hef farið í 🏔
Hér er smá ferðasaga frá því í fyrra.
Síðasti vetur var snjóléttur um allt land og á leiðinni upp Virkisjökul skiptum við ítrekað úr broddum í skíði þar sem færið var grjót hart. Þetta varð svo auðvitað til þess að ég missti annan skíðabroddann tvisvar af skíðinu og varð að hlaupa niður að sækja hann í tvígang. Ekki eitthvað sem maður þarf á að halda á löngum degi 🙈. Þegar hærra var komið ætluðum við yfir Hvannahrygg en þar sem þetta er fáfarið og skyggnið ekki uppá það besta enduðum við á að klifra yfir hann í einni spönn en seinna sama vor fundum við leið sem hægt var að labba yfir hrygginn. Við skelltum upp tjaldbúðum efst á Svínahrygg en meðan við klifruðum Tindaborg fauk tjaldið okkar næstum því með öllu tilheyrandi. Veðrið kom svo fyrr inn en við bjuggumst við og neðst á skíðaleiðinni niður á Svínafellsjökul var svo hart og mikið rok að við áttum í vandræðum með að koma okkur niður á skriðjökulinn. Það endaði svo með því að við skildum bakpokana með skíðunum eftir á Svínafellsjökli og komum okkur sjálfum niður, búnaðurinn yrði seinni tíma vandamál. Þegar heim var komið var Hafdís búin að reiða fram kjötsúpu fyrir svangar og þreyttar konur.
Alltaf lærir maður allskonar á fjöllum en númer 1, 2 og 3 er að fara á fjöll með fólki sem þú treystir fyrir lífi þínu. Allar gátum við rifið hvor aðra upp þegar einhver okkar átti það erfitt. Það er gulls ígildi 👭👭🏔
#mountaineering #skimountaineering #öræfajökull #tindaborg #girlswhoride
@fjallafas@tindaborg
Við vorum fáránlega heppin og fengum að fara til Grænlands á vegum vinnustaðana okkar FAS og AIMG í haust. Markmið ferðarinnar var að skoða möguleikana á að halda námskeið fyrir CAK leiðsögu- og útivistarskólann á Grænlandi sem FAS er í samstarfi við í öðrum verkefnum.
Ferðafélagarnir voru af bestu gerð, við kíktum á endalausa jökulinn við Kangerlussuaq, klifruðum nokkrar leiðir og komumst að því að grænlenskur harðfiskur er margfalt ódýrari en sá íslenski.
Hlakka til að koma aftur 💙🗻🇬🇱