Ormstungan nemur land í kvöld og þvílíkur hvalreki sem hún er. Nýr íslenskur rapp-söngleikur í anda Hamilton, gerist ekki á hverjum degi. Mæli hiklaust með þessari veislu. Allir í leikhús!
Oddur átti afmæli á laugardaginn!!
Hann er besti vinur minn og er svo óendanlega þakklát fyrir að hafa hann mér við hlið í þessu lífi 🫶🏼
Við eyddum afmælisdeginum á hálendinu fjarri 3G/4G/5G og heitu vatni með yndislegu fólki.
Ég læt þessar myndir fylgja bæði til að játa ást mína á Oddi og þakklæti til vina minna OG hvetja fólk til að fara út á land í fegurðina 🫶🏼
Oddur Júl á afmæli!
Hann er besti vinur minn, algjört gæðablóð, mjög fyndinn, hot glímukóngur, svaðalegur kokkur, rómantíker, náttúrubarn, fjallkall og svo elska bara allir Odd 🤍
Knúsið hann og kastið kveðju á hann ✨