Slysavarnafélagið Landsbjörg

@landsbjorg

Samtök slysavarnadeilda og björgunarsveita á Íslandi.
Followers
6,289
Following
69
Account Insight
Score
32.76%
Index
Health Rate
%
Users Ratio
91:1
Weeks posts
Í félaginu eru sjálfboðaliðar á öllum aldri sem leggja sitt af mörkum með ólíkum hætti. Einn þeirra sem hefur sannarlega séð tímana tvenna í björgunarsveitarstarfi er Freyr Bjartmarz. Hann fór á sína fyrstu æfingu með Flugbjörgunarsveitinni Reykjavík fyrir 68 árum, árið 1958. Við gripum Frey í spjall og fórum yfir eftirminnileg útköll, tæknina, fjarskipti og hvernig björgunarsveitarstarfið hefur breyst í gegnum áratugina. Freyr segir að síðasta stóra útkallið sem hann tók þátt í hafi verið á Patreksfirði árið 1983. Hann er þó enn virkur í sjálfboðaliðastarfi Flugbjörgunarsveitarinnar og stendur meðal annars vaktina í flugeldasölunni ár hvert. Þá tekur hann þátt í félagsstarfi eldri félaga sem hittast á laugardögum, fara yfir málin og rifja upp gamlar sögur. Hægt er að hlusta á viðtalið við Frey í hlaðvarpi Landsbjargar, Út í óvissuna, sem finna má á helstu hlaðvarpsveitum.
59 1
4 days ago
Slysavarnafélagið Landsbjörg tók þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia sem haldin var á Akureyrarflugvelli síðasta laugardag. Æfingar sem þessar eru haldnar reglulega víða um land en æfingin á Akureyri var sú fyrsta á þessu ári. Á æfingunni var líkt eftir því að farþegaþota hefði farist. Björgunar- og slökkviaðgerðir voru æfðar, sem og greining og aðhlynning slasaðra á vettvangi og á söfnunarsvæði slasaðra á flugvellinum. Áhersla var meðal annars lögð á flutning slasaðra, boðunarkerfi, vettvangsstjórnun, samhæfingu og fjarskipti. Um 250 manns tóku þátt í æfingunni. Auk björgunarsveita komu að henni fulltrúar Almannavarna, Landhelgisgæslunnar, Landspítalans, lögreglu, slökkviliðs, Rauða krossins og Sjúkrahússins á Akureyri. Þá tók fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa einnig þátt. Æfingar sem þessar eru mikilvægar fyrir alla viðbragðsaðila og stuðla að samhæfðum vinnubrögðum ef alvarlegir atburðir verða. ✈️ Næsta æfing verður á Ísafjarðarflugvelli 30. maí næstkomandi. Þriðja og síðasta æfing ársins verður síðan haldin á Vopnafjarðarflugvelli 4. júní.
119 0
5 days ago
⚓️ Vertíðin er að hefjast og því mikilvægt að undirbúa sig vel áður en haldið er út á miðin. Með reglulegu viðhaldi á báti og búnaði má auka öryggi smábátasjómanna verulega. Við minnum meðal annars á gátlista Samgöngustofu og öryggisappið Ögguna, sem hjálpa til við að halda utan um helstu öryggisatriði. ✅ Sækið öryggisfræðslu og þjálfun hjá Slysavarnaskóla sjómanna til að tryggja nauðsynlega þekkingu og viðbragðsgetu um borð. Höfum öryggið í forgangi yfir strandveiðitímabilið og komum heil heim. Sjá nánar á landsbjorg.is
68 1
12 days ago
Slysavarnafélagið Landsbjörg og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum rituðu undir samstarfsyfirlýsingu á dögunum. Viljayfirlýsingin snýr að Björgunarskóla Landsbjargar og hefur það að markmiði að tryggja gagnkvæman aðgang að þekkingu og eflingu verklegrar þjálfunar. Hún felur meðal annars í sér aukið námskeiðahald í þjóðgarðinum, nýtingu umhverfis Þingvalla til verklegrar þjálfunar og samstarf um fræðslu- og öryggismál. 📷🤝 Á myndunum má sjá Örnu Björg Arnarsdóttur, skólastjóra Björgunarskólans, og Einar Á. E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörð, við undirritun samstarfs yfirlýsingarinnar í fallegu vorveðri. Á sama tíma stóð yfir námskeiðið Vettvangshjálp í óbyggðum þar sem meðal annars landverðir þjóðgarðsins og björgunarsveitarfólk tóku þátt. Slíkt nám nýtist sérstaklega vel þeim sem starfa fjarri hefðbundinni bráðaþjónustu.
197 1
20 days ago
Björgunarsveitir æfðu snjóflóðarústabjörgun á Ísafirði á dögunum. Mikill undirbúningur lá að baki æfingunni, þar sem markmiðið var að skapa sem raunverulegastar aðstæður. Færð og snjóflóðahætta á Vestfjörðum settu strik í reikninginn við undirbúninginn, en að lokum fór æfingin fram við góðar aðstæður og tókst vel til. Hátt í 60 manns tóku þátt, auk tveggja snjóflóðaleitarhunda, og æfðu meðal annars viðbrögð við snjóflóði og rústabjörgun.
151 0
1 month ago
❄️ Snjóþungir dagar að undanförnu Það hefur varla farið fram hjá neinum að veturinn hefur látið vel á sér kræla síðustu vikur og hafa björgunarsveitir sinnt fjölmörgum verkefnum, einkum vegna ófærðar og mikillar ofankomu. Yfir páskahelgina voru skráð hátt í 500 atvik. Björgunarsveitir voru kallaðar út víða um land og voru til taks til að aðstoða fólk á ferðinni. Lukkulega gekk páskahelgin stórslysalaust fyrir sig þrátt fyrir ófærð og óveður.
184 1
1 month ago
Slysavarnadeildin Hraunprýði í Hafnarfirði hefur á undanförnum dögum komið færandi hendi í leikskóla bæjarins. Í tilefni af 95 ára afmæli deildarinnar var ákveðið að færa öllum leikskólum í Hafnarfirði sjúkrakassa sem er sérhannaður fyrir börn. Félagar í slysavarnadeildinni hafa síðustu vikur heimsótt leikskólana og afhent sjúkrakassana. Verkefninu hefur verið afar vel tekið og hafa heimsóknirnar jafnframt vakið mikla forvitni og gleði hjá yngstu kynslóðinni.
73 1
2 months ago
🧊 Ísklifur á Sólheimajökli | Handtökin æfð
193 1
2 months ago
🛻 Björgunarsveitir landsins reiða sig á fjölbreytt tæki og tól í starfi sínu. Á tækjasýningu félagsmanna á dögunum skoðuðum við björgunarsveitarjeppana, rútur, dróna og byggybíla og fengum að kynnast hlutverki þeirra í útköllum og æfingum.
201 1
2 months ago
🥶 Óveður á Austurlandi í gær Veðrið var í aðalhlutverki á Austurlandi í gær og gerði heimamönnum og ferðalöngum skráveifu. Flestar björgunarsveitir á Austfjörðum voru kallaðar út og sinntu fjölbreyttum verkefnum víðs vegar um fjórðunginn. Sveitirnar tryggðu samgöngur þar sem hægt var, aðstoðuðu ferðalanga í vandræðum, losuðu fasta bíla og komu heilbrigðisstarfsfólki til og frá vinnu við krefjandi aðstæður. Við minnum á að fylgjast vel með veðurspám og færð áður en lagt er af stað og sýna aðgát á ferðalögum þegar veður gengur yfir.
172 3
2 months ago
Æfingar fara fram við fjölbreyttar aðstæður og mikilvægur hluti nýliðaþjálfunar er að læra að standa á eigin fótum í íslenskri náttúru, enda geta útköll björgunarsveitanna dregist á langinn við krefjandi aðstæður. ❄️ Um síðastliðna helgi héldu nýliðar í Flugbjörgunarsveitinni Reykjavík á skíðum um hálendið og enduðu ferðina í Landmannalaugum. Vetur konungur lét svo sannarlega finna fyrir sér, en sleða- og bílaflokkurinn slógust með í för, líkt og sjá má á myndum. 📷 @inga.hronn
168 1
2 months ago
🛟 Sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar starfa víðsvegar um landið. Réttur fatnaður og búnaður skipta sköpum því að útköll á sjó geta verið krefjandi, dregist á langinn og farið fram við erfiðar aðstæður. Stefán sýndi okkur réttu handtökin.
136 1
3 months ago