Kópavogur

@kopavogsbaer_

Kópavogsbær: 40 þúsund íbúar, 3 póstnúmer.
Followers
1,653
Following
45
Account Insight
Score
27.5%
Index
Health Rate
%
Users Ratio
37:1
Weeks posts
Kjörfundur hefst klukkan 9 að morgni kjördags 16.maí og lýkur klukkan 22.00. Það eru tveir kjörstaðir í Kópavogi, Smárinn og Kórinn. Íbúar vestan Reykjanesbrautar og í Lindahverfi kjósa í Smáranum. Íbúar austan Reykjanesbrautar að frátöldum þeim sem búa í Lindahverfi kjósa í Kórnum. Nánari upplýsinga um kosningar í Kópavogi er að finna á vef Kópavogsbæjar.
13 0
2 days ago
🌺Hlaðan verður endurbætt 🤝Kópavogsbær og Lionsklúbbur Kópavogs fara í samstarf um endurbætur og viðhald á Hlöðunni, véla- og verkfærahúsinu sem stendur við Kópavogstún 14. 🔨Lionsklúbburinn mun annast framkvæmdirnar en Kópavogsbær verður í ráðgjöf og samvinnu eftir því sem við á. 🏠Hlaðan er hluti af gamla Kópavogsbúinu en Lionsklúbburinn sá um endurgerð tveggja íbúða í því sem teknar voru í notkun árið 2024. 👏Spennandi verkefni - til hamingju
7 0
2 days ago
🌺Börn og ungmenni funduðu með bæjarstjórn Kópavogs og lögðu fram tillögur Barna- og ungmennaþings. 🚌Barnaþingmenn lögðu meðal annars til að yngri en 18 ára fái strætókort frá Kópavogsbæ, að sett verði upp klósettrennibraut í Kópavogslaug, og hugað verð að gæðum matar fyrir nemendur. 🎨Fulltrúar ungmennaráðs lögðu meðal annars til að Inna verði notuð í grunnskólum í stað Mentor, að fleiri ruslatunnur verði settar á almannafæri, fjármagn í list- og verkgreinar verði aukið og kópar verði settir á umferðaljós. 💚Bæjarfulltrúar brugðust við tillögunum og fögnuðu tækifærinu til að funda með börnum og ungmennum. ✅Tillögurnar sem voru bornar fram verða settar í farveg innan sveitarfélagsins. 👏Takk fyrir frábært starf kæru börn og ungmenni.
65 0
4 days ago
Þau Geir Jón Grettisson og Bertha Kristín Jónasdóttir íbúar í Þorrasölum afhentu Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra undirskriftarlista þar sem mótmælt er lagningu vegar frá Vorbraut að Öldusölum. „Kópavogsbær hefur gert athugasemdir við veginn, sem liggur í landi Garðabæjar, á öllum stigum skipulagsferils og gert þá kröfu að vegurinn verði lagður í stokk eða lega hans endurskoðuð,“ sagði Ásdís þegar hún tók við listanum.
6 0
4 days ago
Metþátttaka var í götugöngu Virkni og vellíðan sem fram fór í dag. Tæplega 400 tóku þátt og var í fyrsta sinn boðið upp á tvær vegalengdir, 1,5 km og 3,4 km hring. Hröðustu göngugarparnir voru þau Fríða Björk Gunnarsdóttir og Sverrir Davíð Hauksson en þau unnu einnig aldursflokkaverðlaun 70-80 ára. Frábær dagur á sólríkum degi. Takk kæru þáttakendur.
13 0
5 days ago
Goðsögnin sjálf - David Attenborough - fagnar 100 ára afmæli í dag. Við á Bókasafni Kópavogs og Náttúrusafni Kópavogs óskum honum hjartanlega til hamingju með daginn og þökkum honum fyrir hans framlag 🎉🎈 Svona sjáum við fyrir okkur að hann myndi lýsa lífríkinu á söfnunum okkar 🙏😄
40 0
9 days ago
👣Götugangan Virkni og vellíðan fyrir 60 ára og eldri fer fram 12. maí næstkomandi. Að þessu sinni er hægt að velja um tvær vegalengir, 1,5 km og 3,4 km. 🏆Keppt í aldursflokkum 60-69, 70-79 og 80 ára og eldri. Skráning stendur yfir 💕Sjáumst í Götugöngunni í Kópavogsdal
4 0
11 days ago
Hvað á hún að heita? Við erum að leita að nafni á nýja menningarmiðstöð í Smáralind. Tekið er við tillögum á vef Kópavogsbæjar. Dómnefnd skipuð þeim Braga Valdimar Skúlasyni, Eyrúnu Ósk Jónsdóttur og Hrafnhildi Davíðsdóttur fer yfir innsendar tillögur. Skilafrestur til 1.júní næstkomandi.
36 2
11 days ago
Kársnesið er í stöðugri þróun og uppbygginu. Þar er og verður eftirsóknarvert að búa, starfa og vera. Framtíðarsýn Kársness er til umfjöllunar í nýju myndbandi sem unnið er í tengslum við skipulagsvinnu á vestanverðu Kársnesi. Kynntu þér málið
12 0
11 days ago
💕Alzheimersamtökin eru á leið í Geðræktarhúsið í Kópavogi. 🌺Samtökin munu opna þar nýtt þjónustuúrræði fyrir fólk á fyrstu stigum heilabilunar. 🤝Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Guðlaugur Eyjólfsson framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna skrifuðu undir leigusamning í vikunni ásamt Ragnheiði Ríkharðsdóttur formanni stjórnar samtakanna. 🎉Einstaklega ánægjuleg tíðindi – til hamingju Kópavogur @alzheimersamtokin
18 0
12 days ago
Great news! Basalt Architects has been selected to further develop the design of a new cultural centre at Smáralind. The cultural centre will be located within a 900 m² space in the eastern part of Smáralind and is envisioned as an open and dynamic environment combining a library, event facilities, and creative workspaces for a diverse group of users. The evaluation of proposals placed emphasis on a clear concept, strong flow, accessibility, flexibility, usability, sustainability, and feasibility. We look forward to continuing the development of the project in collaboration with @heimarhf and @kopavogsbaer_ , contributing to further strengthening Smáralind as a vibrant destination for culture and everyday life. The centre is expected to open in spring 2027.
98 0
17 days ago
Félagshesthús hjá Spretti Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Halldór Victorsson, formaður Spretts, skrifuðu undir viljayfirlýsingu um byggingu félagshesthús og skólastofu. Félagshesthúsið mun rúma 40 hesta og þar verður aðstaða fyrir fatlaða einstaklinga að sækja sér reiðkennslu. Þá er hugmynd um að grunnskólanemendur í sveitarfélögunum verði gert kleift að sækja reiðkennslu sem hluti af vali í grunnskóla á skólatíma. „Sprettur hefur þá sýn að gera hestamennsku og samveru við hesta aðgengilegri fyrir breiðari hóp í samfélaginu en þekkist í dag með áherslu á heilsueflingu, félagslegan stuðning og menntun,“ segir í viljayfirlýsingunni. Þar kemur einnig fram að mikilvægt sé að styðja við markmið sveitarfélaganna tveggja um lýðheilsu, vellíðan og sjálfbærni. 🎉Til hamingju Kópavogur, Garðabær og Sprettur @hestamannafelagidsprettur
15 0
17 days ago