Ég er svona alveg að verða búin að jafna mig á aldrinum. Það er ýmislegt sem flýgur í gegnum hugann á svona tímamótum. En takk innilega fyrir að senda mér kveðju. Ég kann virkilega að meta þær allar.
Takk fyrir komuna þið öll sem kíktuð á Tíu Tónleika. Takk fyrir þið sem tókuð þátt í tónleikunum og vera gestir mínir og spjalla og spila. Það er líka gott að vita að það sé hægt að framkvæma svona tónleikaröð og vita að það séu tónleikastaðir sem standa opnir og eru til í að vera með.
Takk fyrir mig, Jón Hilmar
Aðeins fjórir tónleikar eftir, sex liðnir. Ef þú hefur ekki sótt tónleika úr tónleikaröðinni Tíu tónleikar nú þegar, þá er enn möguleiki til þess að styðja við hæfileikabúntið og tónlistarmanninn Jón Hilmar Kárason í þessari viku. Miðasala fer fram á heimasíðunni hans sem nálgast má á @jon.karason . Hann heldur tónleikaferðalagi sínu áfram um austfirði og er meira en hálfa leið kominn. Það er búið að vera stórkostlegt að fylgjast með Jóni deila sviðinu með fjölbreyttum hópi hæfileikaríks listafólks á hverjum viðkomustað. Sannkallaður sambræðingur af sagnalist, ljóðlist, tónlist og spjalli. Það er vel hægt að sækja fleiri en einn því dagskráin er aldrei söm á hverjum stað.
28.okt - Tónlistarmiðstöð Austurlands með Bigga Baldur
29. okt - Skaftfell listamiðstöð með Guðrúnu Veturliða
30. okt - Beljandi Brugghús með Guðmundi Arnþóri
2. nóv - Kaupvangur á Vopnafirði með Bigga Baldurs
Menningarstofa styður tónleikaferðlag Jón Hilmars með afnotum á Tónlistarmiðstöð Austurlands og Bragganum á Stríðsárasafninu á Reyðarfirði. Húrra fyrir Jón Hilmar, frábært sjálfsprottið framtak sem við styðjum af fullu hjarta!
Half way through. Það er búið að vera stórkostlegt að deila sviði með þessum frábæru listamönnum. Sagnalist, ljóðlist, tónlist og spjall. Stöðvarfjörður í dag með Garðari Harðar.