The final episode of Reykjavík Fusion airs on Icelandic Television tomorrow night! Produced by OUR production company @act4_production (please drop us a follow 😉).
Tökur á Ráðherranum seríu tvö eru byrjaðar. Við Jónas erum mjög spenntir handritahöfundar og þykir mjög gaman að mæta á sett og trufla og þvælast fyrir. #raðherrannsnyraftur
Wrap. Húrra! Ráðherrann er nú fastur á filmu. Þetta er sólarsýnin hún Nanna Kristín að njóta síðustu stunda síðasta tökudagsins. Höfðinginn hann Arnór Pálmi leikstýrði á móti henni. Það er gaman að vinna við skemmtilegt - en öllu dýrmætara finnst mér að vinna með góðu fólki. ❤️
‘La Habana es loca, oh yeah! Only my homies, solo my gang’, syngur Góði Úlfurinn í nýju lagi sem væntanlegt er á næstunni. Einhvern veginn endaði gærkvöldið í tökum á myndbandi við þennan bráðum glóbal smell. Líkt og gefur að skilja erum við Edda engan veginn nógu töff til að vera með á myndinni.
Ég veit að jólabókaflóðið hefur fjarað út. Það er stórstreymisháfjara á kredit-strönd landans. Hún er útbýjuð krumpuðum jólapappír, hálfétnum svínaafgöngum og malt&appelsín klístri. En þið verðið öll að kaupa þessa bók. Og þið verðið öll að lesa hana.
Það var svosum viðbúið að ég myndi mæla með þessari bók - enda er höfundurinn minn mesti bróðir og bandamaður í slagnum. En þessi bók er einmitt ástæðan fyrir því að ég er stoltur af því.
Þessi bók fjallar um jörðina okkar. Hún fjallar um þá gráðugu og fáfróðu sem reyna að fanga sjálfan vindinn til að græða peninga. Hún fjallar um þá sem finna til með náttúrunni og þekkja mikilvægi þess að halda vörð um hana. Og hvernig fáfræðin verður einungis sigruð með kærleiknum.
Ég las þessa bók á Santa Clara klasanum hér utan við Kúbu. Hér nam Kólumbus fyrst land í nýja heiminum. Snjóhvítar strendur, tært haf og himinhá pálmatré. Þetta kann að sýnast paradís líkast. En heimurinn er að snöggbreytast. Með hverju ári eykst styrkur fellibylsins sem ryðst hér um. Hann fellir tré og slítur í sundur vegi. Hann rífur upp landið og brotið étur upp ströndina sem minnkar og minnkar. Hafið er gruggugt af fori sem bylurinn feykir út og ströndin er þakin því sem hafið spýtir aftur upp úr sér. En vindurinn - hann öskrar bara áfram hærra og hærra fyrir daufum eyrum. Þetta er nýi heimurinn.