Announcement // Tilkynning
🇮🇸Kæru vinir
Við höfum tekið þá erfiðu en ígrunduðu ákvörðun að fresta IceDocs um óákveðinn tíma. Við teljum að þessi ákvörðun sé sú besta fyrir hátíðina að sinni.
Í gegnum árin höfum við lagt hjarta okkar, tíma og orku í að byggja upp eitthvað sem skiptir máli. Líkt og mörg þeirra sem starfa í menningu höfum við fært bæði persónulegar og faglegar fórnir til að láta viðburðinn verða að veruleika, en sjáum þó alls ekki eftir neinu. Nú hefur lífið leitt okkur í spennandi en ólíkar áttir, og tími er kominn til að taka pásu í bili.
Við viljum sérstaklega þakka öllum bakhjörlum hátíðarinnar. Trú ykkar á verkefnið skipti sköpum. Einkum og sér í lagi þegar verkefnið fór fyrst af stað.
Við áhorfendur, kvikmyndagerðarfólk og annað stuðningsfólk hátíðarinnar viljum við segja að það hefur verið okkur sannur heiður og ánægja að fá að deila sögum, skapa minningar og vinna með ykkur. Þið hafið verið hjartsláttur IceDocs, og fyrir það erum við óendanlega þakklát.
Þó að IceDocs taki pásu lifir andi hátíðarinnar áfram í hugum okkar og hjörtum. Við vonumst til að taka upp þráðinn síðar og byggja þá á þeim sterka grunni sem starfsfólk okkar hefur lagt metnað sinn í að leggja.
Bless í bili!
Með þakklæti,
IceDocs teymið
🇬🇧Dear Friends,
We’ve made the difficult but carefully considered decision to put IceDocs on hold indefinitely. Please know this decision was not made lightly.
Over the years, we’ve poured our hearts, time, and resources into creating something meaningful. Like many others working in the cultural sector, we've made personal and professional sacrifices to bring the event to life, and we don't regret any of it. However, life has now taken us in different directions, and we’ve decided to pause for the time being.
It has been an absolute pleasure to share stories, create memories, and collaborate with so many talented individuals. You have all been the heartbeat of this event, and for that, we are deeply grateful.
Although the event is on hold for now, we hope its spirit will endure, and we remain hopeful that one day it will be revived and restored to its full potential.
With heartfelt gratitude,
The IceDocs team
IceDocs hefur opnað fyrir innsendingar! - We're open for submissions! Engin frumsýningarkrafa er á íslenskum myndum sem sækja um en þær mega ekki hafa verið í almennri dreifingu (reglulegar bíósýningar, sýningar í sjónvarpi, á streymi eða opnum vef). Ekkert umsóknargjald er fyrir íslenskar myndir. Umsóknarfrestur er til 5. apríl. Sjáumst á Akranesi 23.-27 júlí!
______________________________________
We are open for submissions! Regular deadline March 15th, final deadline April 5th. See you in Akranes for this year's edition July 23- 27th!
Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda og IceDocs alþjóðleg heimildamyndahátíð á Akranesi, í samstarfi við Bíó Paradís og heimildamyndavinnusmiðju SKL og Yrsu Roca Fannberg, bjóða til heimildamyndaveislu þann 14.september n.k. Sýndar verða m.a. verðlaunamyndir frá báðum hátíðunum í ár, auk meistaraspjalls, pallborðsumræðna og tónleikum með Johnny King kántrýgoðsögn! //////// Skjaldborg – Icelandic Documentary Film Festival and IceDocs International Documentary Film Festival in Iceland, in collaboration with Bíó Paradís and the documenray workshop of the Icelandic Director‘s Guild and Yrsa Roca Fannberg, are programming an all-day documentary feast on September 14th. The programme includes award winning films from both festivals in addition to a masterclass, panel discussion and a music performance by legendary Icelandic country musician Johnny King. The documentaries are screened with English subtitles. Link in bio
Some images from our closing night and award ceremony where we offered the gorgeous Wild Icelandic Pink Gin from Icelandic distillery @ognatura . Music was provided by Icelandic performers @rakelisrakel and Zaar . Icelandic indie legends Sindri Már Sin Fang and Örvar Smárason of Múm fame (who also form the band Team Dreams ) were our DJ's for the night.
Í ár voru tvær dómnefndir skipaðar ungmennum á IceDocs. Fyrri dómnefndin, skipuð ungmennum 18 ára og eldri hafði það verkefni að horfa á myndir í aðal keppni og velja vinningshafa. Hinsvegar var dómnefnd skipuð unglingum 13- 16 ára en þeirra hlutverk var að horfa á stuttmyndir fyrir ungt fólk og velja vinningshafa. Er það von skipuleggjanda að þetta efli áhuga á kvikmyndagerðarlist og kvikmyndalæsi ungmenna.Við þökkum þessu frábæra og efnilega unga fólki innilega fyrir vel unnin störf! //
This year IceDocs had two youth juries, one who selected a winner from the main competition films and the younger one selected the shorts for youth winner!
Some images from our fabulous Swim-in Cinema screening at this year's festival. Guests of all ages enjoyed a dip into the warm Bjarnarlaug swimming pool whilst enjoying an episode of mockumentary series IceGuys and a very blue mocktail!
Við óskum vinningshöfum IceDocs 2024 aftur innilega til hamingju! Í ár voru það tvær heimildamyndir sem deila verðlaununum: The Silence of Reason eftir Kumjönu Novakovu og The Stimming Pool eftir hópinn The Neurocultures Collective. Stuttmyndaverðlaunin hlaut myndin The Rooster Who Laid Eggs eftir Ninu Forman en myndin Torn eftir Simone Hart og Jón H.Geirfinnsson fékk sérstaka viðurkenningu. Verðlaun ungmennadómnefndar fóru til myndarinnar I'm Not Everything I Want to Be eftir Klöru Taskovsku og stuttmyndaverðlaun ungra áhorfenda fóru til Nelson the Piglet eftir Anneke de Lind van Wijngaarden. Áhorfendaverðlaunin í ár hlaut Yrsa Roca Fannberg kvikmyndagerðakona.
// The sixth IceDocs – Iceland Documentary Film Festival concluded on 21 July, with Kumjana Novakova’s The Silence of Reason and The Neurocultures Collective’s The Stimming Pool sharing the Main Competition Award.
In the Short Film Competition, Torn by Simone Hart and Jón H. Geirfinnsson earned a Special Mention, while The Rooster Who Laid Eggs by Nina Forsman took the Main Award. The Youth Jury Award went to I’m Not Everything I Want to Be by Klára Tasovská, and the Shorts for Youth Jury Award was given to Nelson the Piglet by Anneke de Lind van Wijngaarden.
Pictured from left to right: Kumjana Novakova, Yrsa Roca Fanberg and Steven Eastwood. Photo by @gunnlod
Lokamynd sýnd kl. 20 sunnudagskvöld
Heartist kannar líf og list listakonunnar Sigrunar Gunnarsdóttur en hún er einn merkilegasti samtímalistamaður Færeyja. Litríkur og einfaldur stíll hennar hefur hlotið hljómgrunn í listaheiminum og athygli bæði heima fyrir og á alþjóðlega vísu. Þessi heimildarmynd rímar við fagurfræði og vandlega samsett myndmál listakonunnar og kafar í listræna sýn hennar, lífshlaup og persónulegar áskoranir. Mynd sem veitir innblástur við að elta drauma sína sama á hvaða aldri maður er.
// Sunday at 8 pm
Heartist explores the life and work of artist Sigrun Gunnarsdóttir - a leading contemporary painter in the Faroe Islands. The colourful simplicity of her style has resonated with the art world, resulting in local and international recognition. With aesthetically pleasing and carefully composed imagery, inspired by Sigrun's own approach, this documentary delves into her artistic vision, her life journey, personal quirks and challenges. A film to inspire young and old to follow their dreams.
Í dag verður flóamarkaður og fjör á Akratorgi frá kl. 14. Einnig verður sýning á veggjalist til sýnis- afrakstur veggjalistarnámskeiðs IceDocs. //
Today there will be a fleamarket and an exhibition of graffiti art on the town square in front of the IceDocs centre.