Hér&Nú

@herognuads

Followers
1,283
Following
300
Account Insight
Score
26.5%
Index
Health Rate
%
Users Ratio
4:1
Weeks posts
Hjúkrun snertir okkur öll og við þurfum öll á hjúkrun að halda. Hér&Nú fyrir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.
22 0
23 days ago
Það er sjaldgæft að fá að stíga inn í nýja veröld en í þessari nýju auglýsingu fyrir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fengum við einstakt tækifæri til að fylgja hjúkrunarfræðingum eftir á þeirra eigin vettvangi þar sem allt er raunverulegt. Í auglýsingunni sýnum við lífið eins og það birtist hjúkrunarfræðingum á fjölbreyttum vinnustöðvum þeirra, á spítölum, heilsugæslu, í skólum, inni á heimilum og víðar. Raddir íslenskra hjúkrunarfræðinga leiða okkur í gegnum auglýsinguna og minna okkur á mikilvægi stéttarinnar, og hversu nauðsynlegt það er samfélaginu er að fleiri velji sér þessa leið. Við erum þakklát fyrir traustið og stolt af því að hafa fengið að segja þessa sögu. Hjúkrun snertir okkur öll og við þurfum öll á hjúkrun að halda. @hjukrun
61 0
24 days ago
Bragðgóð Kefír auglýsing fyrir Mjólku í framleiðslu Silfru er nú komin í loftið! Kefír er gómsæt mjólkurvara, stútfull af lifandi góðgerlum sem eru frábærir fyrir magaflóruna. @mjolka.is Leikstjóri: Guðmundur Þór Kárason Framleiðandi: Sigrún María Jörundsdóttir Tökumaður: Guðmundur Þór Kárason Ljós: Oddur Elíasson Eftirvinnsla: Hér&Nú Stílisti: Sigrún Lillendahl Sminka: Rósa Guðbjörg Guðmundsdóttir
17 0
1 month ago
Uppsagnarbréfið sem fjármálaráðherra fékk sent í tengslum við herferðina Góð áminning hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum. Herferðin vekur athygli á áformum ráðherra um að afnema áminningarskyldu opinberra starfsmanna og er unnin í samstarfi við BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands.
21 0
1 month ago
Langar þig að nema land? Nú geturðu svo sannarlega gert það! Sagnaland er nýr heimur íslenskra hljóð- og rafbóka þar sem allir landkönnuðir nær og fjær finna sögur við sitt hæfi. Hönnunin samanstendur af tveimur íslenskum greinarmerkjum: sviga og kommu sem mynda sjónræna tengingu milli lesturs og hlustunar og tengja saman tvo spennandi bókaheima.
36 0
1 month ago
Heilsíða fyrir BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fékk uppsagnarbréf í tengslum við herferðina Góð áminning sem fór í loftið á dögunum. @bsrb_bandalag @kennarasambandid @hjukrun
44 0
1 month ago
Takk fyrir komuna! Aðalkvöld auglýsingabransans var haldið virkilega hátíðlegt í Lúðrapartýi Hér&Nú eftir afhendingu Lúðursins á dögunum. Við verðum enn að tína upp konfetti af gólfinu þangað til næst, sjáumst þá!
34 0
1 month ago
Innilegar hamingjuóskir til allra sem hlutu tilnefningu til Lúðursins! Við erum afar stolt af okkar frábæru viðskiptavinum og þeim tilnefningum sem verkefni þeirra hlutu að þessu sinni. Blush er tilnefnt fyrir hljóðauglýsingu ársins, IKEA og Nói Siríus fyrir beina markaðssetningu, Strætó í opnum flokki almannaheilla og Turninn sem besta mörkunarverkefni. Við hlökkum mikið til að fagna þessum glæsilega árangri með kollegum okkar þann 6. mars!
45 1
2 months ago
Á Svörtum föstudegi fyllast miðlarnir af auglýsingum um tilboð um allt á milli himins og jarðar. IKEA fór að þessu sinni aðra leið með það að leiðarljósi að vekja athygli á neyslumynstri fólks í kringum brjálaða tilboðsdaga, og jafnframt minna á að það er sama verð í IKEA allt árið um kring. @ikeaisland
1 0
2 months ago
Ormsson jólaandinn sveif yfir vötnum á Julevenner tónleikum Emmsjé Gauta í desember þar sem HTH eldhúsinnrétting var sett upp á sviðinu og gestir gengu inn á sviðið í gegnum ísskápshurð. Piparkökur voru bakaðar og þvottavél nýtt á nýstarlegan hátt (fyrir peningaþvott). @ormsson.is
15 0
3 months ago
Sætasti viðburður ársins átti sér stað síðastliðið sumar þegar Patrekur Jaime og Binni Glee kynntu nýja snyrtivörulínu Nóa Siríus og buðu bestum og gangandi upp á yfirhalningu með glænýjum vörum! @noisiriusofficial
12 0
3 months ago
Skólastofa utandyra? Þann 17. júní sl. voru 85 ár liðin frá því að Aðalbygging Háskóla Íslands var vígð. Að því tilefni var ákveðið að draga upp mynd af þeim raunveruleika sem hefði orðið ef Happdrætti Háskóla Íslands hefði ekki verið stofnað og staðið að fjármögnun 25 bygginga fyrir Háskólann.
21 0
3 months ago