Kveð árið 2025. Takk fyrir mig. Margt gert bæði gott og erfitt. Stórar stundir og farið víða. Allt betra með þeim ferðafélugum sem standa manni næst. Verum góð árið 2026.
Elsku vinur. Lolli. Þú varst órjúfanlegur hluti af okkar stóra vinahópi, sem haldið hefur tryggð og vináttu í rúm 40 ár. Saman höfum við allir deilt sorgum og sigrum en ekki síst óteljandi hlátursköstum. Endalaus kvöld undir stjörnunum hlæjandi, að bralla eitthvað og gera prakkarastrik. Hlátur þinn var ógleymanlegur og dýrmætur og mun óma í hjörtum okkar um alla tíð. Þú varst alltaf tryggur, traustur og sannur vinur og þolinmóður gagnvart okkur, jafnvel þó við höfum ekki alltaf átt það skilið.
Þú varst alltaf Lolli. Sannur og trúr sjálfum þér og einstaklega dýrmætur vinur.
Þín verður sárt saknað og stórt skarð hefur svo sannarlega verið hoggið í okkar hóp með fráfalli þínu. Það var okkar lán að kynnast þér og eiga vinskap þinn til svona margra ára.
Við munum halda minningu þinni á “Lofti” og hafa þig með okkur í anda þar til við sjáumst næst.
Þínir vinir að eilífu.
Kársnesbræður.