Í dag fögnum við Alþjóðlega safnadeginum og leiðum hugann að því hvernig söfn opna glugga út í heim og bjóða upp á ný sjónarhorn, líkt og sjá má í sýningunum sem nú standa yfir í Hafnarborg.
Annars vegar í Heiðvirðum einstaklingum eftir Weroniku Balcerak og Lukas Bury, sem draga fram tengingar á milli Póllands og Íslands í gegnum persónulegar sögur, viðskiptatengsl og hluti – sem varpa ljósi á samfélag og sjálfsmynd.
Í gegnum sýninguna Bergmál eftir Rögnu Fróða, leggjum við svo í ferðalag um heim þar sem form, mynstur og efni skapa rými fyrir skynjun, íhugun og nýja nálgun, í því skyni að dýpka skilning okkar á okkur sjálfum og líðandi stundu.
Til hamingju með Alþjóðlega safnadaginn!
---
Today, we celebrate International Museum Day and reflect on how museums open windows onto the world and offer new perspectives, as can be seen in the exhibitions currently on view at Hafnarborg.
Some Honest Persons by Weronika Balcerak and Lukas Bury brings together personal stories, histories of trade and objects to illuminate connections between Poland and Iceland – and, in turn, ideas of society and identity.
In Echo, Ragna Fróða invites us into a world where form, pattern and material create space for perception, reflection and new ways of seeing, deepening our understanding of ourselves and the present moment.
Happy International Museum Day!
Í Hafnarborg stendur nú yfir sýningin Rúna:letur þar sem kynnt er leturgerð eftir Rúnu sem grafíski hönnuðurinn Elías Rúni hefur unnið út frá handskrift listakonunnar.
Á sýningunni er gefin innsýn í ferlið við að koma letrinu á stafrænt form en nú er jafnframt hægt að hlaða því niður til eigin nota á heimasíðu safnsins.
Sýningin er opin um þessa og næstu helgi og er hún sett upp í tengslum við HönnunarMars, í minningu listakonunnar.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
---
Now on view at Hafnarborg, Rúna:Script explores a typeface by Rúna, based on work by graphic designer Elías Rúni, who has developed it from the artist’s handwriting.
The exhibition offers insight into the process of digitising the typeface, which can now be downloaded for free use from the museum’s website.
Presented in connection with DesignMarch, the exhibition remains open this weekend and next weekend and is dedicated to the memory of the artist.
Free entry – everyone welcome.
Á morgun, sunnudaginn 10. maí kl. 13, mun Ragna Fróða, myndlistarmaður, taka á móti gestum og ræða um einkasýningu sína, Bergmál, sem nú stendur yfir í Hafnarborg.
Á sýningunni býður Ragna Fróða okkur inn í töfrandi heim mynstra, lita, forma og áferða en heimur Rögnu er í senn kunnuglegur og framandi, nostalgískur og nýstárlegur.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
---
Tomorrow, Sunday May 10th at 1 p.m., artist Ragna Fróða will welcome guests for a talk of her solo exhibition, Echo, currently on view at Hafnarborg.
In the exhibition, Ragna Fróða invites us into an alluring world of patterns, colours, forms and textures. Her visual language is at once familiar and foreign, nostalgic and new.
Free entry – everyone welcome.
Í sýningunni Rúna:letur, sem verður opnuð í Hafnarborg síðdegis, er sjónum beint að leturgerð listakonunnar Rúnu (Sigrúnar Guðjónsdóttur), sem grafíski hönnuðurinn Elías Rúni hefur endurgert í stafrænu formi undir heitinu Rúna.
Letrið birtist í nokkrum þeirra bóka sem Rúna hannaði og myndskreytti við texta eftir móður sína, Ragnheiði Jónsdóttur.
Elsta dæmið er Glaðheimakvöld frá 1959, en kápu bókarinnar má sjá hér.
Sýningin dregur fram þennan þátt í höfundarverki Rúnu og varpar ljósi á hvernig letur getur geymt meira en merkingu, svo sem handbragð og tíðaranda.
Letrið verður jafnframt gert aðgengilegt á heimasíðu Hafnarborgar. Sýningin er tileinkuð minningu Rúnu.
---
In the exhibition Rúna:Script, opening at Hafnarborg this afternoon, attention is directed to the typeface of the artist Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir), which graphic designer Elías Rúni has recreated in digital form under the name Rúna.
The typeface appears in several of the books that Rúna designed and illustrated for texts by her mother, Ragnheiður Jónsdóttir. The earliest example is Glaðheimakvöld from 1959, which you can see here.
The exhibition draws attention to this aspect of Rúna’s body of work and sheds light on how letters can hold more than meaning, including the mark of the hand and the spirit of its time.
The typeface will also be made available on Hafnarborg’s website. The exhibition is dedicated to the memory of Rúna.
Í minningu Rúnu
Í vikunni kvaddi okkar ástsæla hafnfirska myndlistarkona, Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir), þessa jarðvist. Rúna var á hundraðasta aldursári, fædd árið 1926, en með fráfalli hennar lýkur löngum og einstökum ferli sem markaði djúp spor í sögu íslenskrar myndlistar og hönnunar.
Líf og list Rúnu voru órjúfanlega tengd. Hún starfaði á fjölbreyttum vettvangi, frá frjálsri listsköpun til hönnunar, og var frumkvöðull í leirlist á Íslandi. Á ferli sínum átti hún sömuleiðis farsælt samstarf við alþjóðleg hönnunarfyrirtæki, auk þess að vinna að bókaskreytingum, ritlist, auglýsingum og veggmyndum, meðal annars í samstarfi við eiginmann sinn, Gest Þorgrímsson.
Myndheimur Rúnu einkennist af ljóðrænum takti þar sem kvenfígúrur, fuglar, fiskar og náttúruform fléttast saman í litum og línum. Verk Rúnu bera sterk höfundareinkenni og eru til marks um óþrjótandi sköpunarkraft og listfengi. Þá hlaut hún margvíslegar viðurkenningar í gegnum tíðina, svo sem fálkaorðuna og heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands, auk þess sem hún var fyrsti bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2005.
Fyrir hönd Hafnarborgar þökkum við Rúnu fyrir hennar ómetanlega framlag til lista og menningar. Minning hennar lifir í verkunum sem halda áfram að tala til okkar.
---
In Memory of Rúna
This week, our beloved Hafnarfjörður artist Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir), passed away at the age of 99. With her passing, a long and remarkable career comes to an end, one that left a deep mark on Icelandic visual art and design.
Rúna’s life and art were deeply intertwined. A pioneer in ceramic art in Iceland, she worked across art, design, illustration, writing, advertising and murals, including projects undertaken in collaboration with her husband, Gestur Þorgrímsson.
Rúna’s visual world is characterised by a lyrical rhythm in which female figures, birds, fish and natural forms intertwine through colours and lines. Her works bear a strong personal signature and reflect her inexhaustible creative energy and artistic skill.
On behalf of Hafnarborg, we thank Rúna for her invaluable contribution to art and culture. Her memory lives on in her works.
Dziś, niedzielę 26 kwietnia o godz. 16:00, artyści Weronika Balcerak i Lukas Bury spotkają się z publicznością w Hafnarborg na oprowadzaniu po wystawie Pewne uczciwe osoby (Some Honest Persons) w języku polskim.
Wydarzenie jest częścią programu Hafnarborg W moim języku, którego celem jest zwiększenie dostępności muzeum dla osób o różnych doświadczeniach poprzez zapraszanie gości na wydarzenia w różnych językach.
Wstęp wolny – wszyscy mile widziani.
---
Í dag, sunnudaginn 26. apríl kl. 16 munu myndlistarmennirnir Weronika Balcerak og Lukas Bury taka á móti gestum og segja frá verkum sínum á sýningunni Heiðvirðum einstaklingum á pólsku.
Spjallið er hluti af viðburðaröðinni Á mínu máli sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
---
Today, Sunday April 26th at 4 p.m., artists Weronika Balcerak and Lukas Bury will welcome visitors at Hafnarborg for a talk in Polish of their exhibition Some Honest Persons.
The event is part of Hafnarborg’s programme In My Language, which is focused on making Hafnarborg more accessible to people of different backgrounds by welcoming guests to the museum in various languages.
Free entry – everyone welcome.
Á morgun, sunnudaginn 12. apríl kl. 13-15, bjóða Hafnarborg og GETA upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem þátttakendur búa til draumafangara úr náttúrulegum og fjölbreyttum efnivið.
Smiðjan er leidd af Mariönu Samarska og Anne Rombach en tungumál smiðjunnar eru íslenska, úkraínska, enska og þýska.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
---
Завтра, у неділю 12 квітня з 13:00 до 15:00, Hafnarborg та GETA запрошують усіх на багатомовний майстер-клас, де учасники створюватимуть «ловців духів» із природних і різноманітних матеріалів.
Майстер-клас проводять Mariana Samarska та Anne Rombach, а його мовами є ісландська, українська, англійська та німецька.
Вхід безкоштовний — ласкаво просимо.
---
Tomorrow, Sunday April 12th at 1-3 p.m., Hafnarborg and GETA invite you to a multilingual workshop where participants will create spirit catchers from natural and varied materials.
The workshop is led by Mariana Samarska and Anne Rombach and will be held in Icelandic, Ukrainian, English and German.
Free entry – everyone welcome.
Nú eru páskar að ganga í garð og sendir starfsfólk Hafnarborgar vinum og velunnurum safnsins hugheilar óskir um gleðilega hátíð. Þá vekjum við athygli á opnunartímanum hjá okkur um páskana:
2. apríl, skírdagur – opið kl. 12–17
3. apríl, föstudagurinn langi – lokað
4. apríl, laugardagur – opið kl. 12–17
5. apríl, páskadagur – lokað
6. apríl, annar í páskum – opið kl. 12–17
Í safninu standa nú yfir tvær sýningar. Annars vegar er það sýningin Heiðvirðir einstaklingareftir þau Weroniku Balcerak og Lukas Bury, í Aðalsal Hafnarborgar, og hins vegar Bergmál eftir Rögnu Fróða, í Sverrissal.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
---
The Easter season is now upon us and the staff of Hafnarborg therefore wishes the friends and supporters of the museum a very happy Easter. Opening hours during the holidays are as follows:
April 2nd, Maundy Thursday – open 12–5 p.m.
April 3rd, Good Friday – closed
April 4th, Holy Saturday– open 12–5 p.m.
April 5th, Easter Sunday – closed
April 6th, Easter Monday – open 12–5 p.m.
The museum is currently presenting two exhibitions. Some Honest Persons by Weronika Balcerak and Lukas Bury is on view in Hafnarborg’s main gallery while Echo by Ragna Fróða is presented in the museum’s Lower Gallery.
Free entry – everyone welcome.
Í síðustu viku nutum við þess heiðurs að fá í heimsókn til okkar fulltrúa frá pólska þinginu ásamt Aleksander Kropiwnicki, sendiherra Póllands, að sjá sýninguna Heiðvirða einstaklinga.
Listamennirnir Weronika Balcerak og Lukas Bury leiddu hópinn um sýninguna og röktu fjölmargar tengingar á milli Íslands og Póllands í gegnum tíðina, sem koma fram í verkum þeirra.
Þá var rætt um sögu, minningar og hvað það þýðir að tilheyra en við þökkum gestum okkar kærlega fyrir komuna og áhuga þeirra á sýningunni.
Þessi heimsókn minnti okkur jafnframt á með hve ólíkum hætti listin getur skapað rými fyrir samtal og tengsl þvert á landamæri.
---
Last week, we were honoured to welcome representatives of the Polish parliament and Ambassador Aleksander Kropiwnicki to Hafnarborg for a tour of Some Honest Persons.
Artists Weronika Balcerak and Lukas Bury guided our guests through the exhibition, sharing their insights into many connections between Poland and Iceland through the years as explored through artworks and objects.
The visit sparked meaningful conversations around history, memory and belonging and we thank our guests for their visit and interest in the exhibition.
This occasion was a reminder of the many ways art can open space for dialogue and new connections across borders.
Á morgun, sunnudaginn 29. mars kl. 14, munu Ragna Fróða, myndlistarmaður, og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, sýningarstjóri, taka á móti gestum og ræða um einkasýningu listakonunnar, Bergmál, sem nú stendur yfir í Hafnarborg. Á sýningunni býður Ragna Fróða okkur inn í töfrandi heim mynstra, lita, forma og áferða en heimur Rögnu er í senn kunnuglegur og framandi, nostalgískur og nýstárlegur.
Upphafspunktur verkanna eru blekteikningar sem unnar eru í flæði og í beinu samtali milli undirmeðvitundar og handar. Í gegnum marglaga vinnuferli umbreytist hin óhefta lína frá handgerðri teikningu yfir í stafrænt útsaumuð verk sem birtast á mörkum hins óhlutbundna og fígúratífa.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
---
Tomorrow, Sunday March 29th at 2 p.m., artist Ragna Fróða and curator Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir will welcome guests for a talk of the artist’s solo exhibition, Echo, currently on view at Hafnarborg. In the exhibition, Ragna Fróða invites us into an alluring world of patterns, colours, forms and textures. Her visual language is at once familiar and foreign, nostalgic and new.
The starting point for the works is a series of ink drawings created in a state of flow, in direct dialogue between the subconscious and the hand. Through a multi-layered process, the uninhibited line of the drawing is transformed into digitally embroidered works that exist on the threshold between the abstract and the figurative.
Free entry – everyone welcome.
Föstudaginn 27. mars til sunnudagsins 29. mars sýnir Hafnarborg stutt vídeóverk eftir listakonuna Clare Langan í tengslum við hreyfimyndahátíðina Physical Cinema Festival 2026.
Í safninu má sjá verkið Heart of a Tree (2020) sem gerist í hrjóstrugu landslagi, þar sem engin tré er að finna. Dregin er upp mynd af framtíð þar sem mannkynið þarf að aðlagast til að lifa af í heimi sem er mótast af vistfræðilegu hruni. Þá fjallar verkið um mikilvægi trjágróðurs fyrir líf á jörðinni og beinir sjónum að rofnu sambandi mannsins við náttúruna.
Eftir myrkur er svo einnig hægt að sjá Future Primal (2018) eftir Clare á gafli Hafnarborgar en verkið fjallar sömuleiðis um þróun og framtíð mannkynsins á tímum þegar fjöldi tegunda er á barmi útrýmingar. Verkin sitja þannig á milli vísindaskáldskapar, getgátna og pælinga um náttúruna.
Komið við og upplifið verk Clare Langan bæði innan safnsins og utan þess.
---
Friday March 27th until Sunday March 29th, Hafnarborg presents special screenings of short video works by artist Clare Langan as part of Physical Cinema Festival 2026.
Inside the museum, Heart of a Tree (2020) is set in a barren, treeless landscape and imagines a future in which humans must adapt to survive in a world shaped by environmental collapse. The work also reflects on the vital role of trees in sustaining life on Earth and draws attention to humanity’s disconnection from nature.
After dark, passers-by can also see Future Primal (2018) by Langan projected onto the side of Hafnarborg. This work likewise reflects on evolution and the future of the human race in the face of species extinction. Together, the works move between science fiction, speculation and ecological reflection.
Stop by Hafnarborg and see Clare Langan’s works both inside the museum and outdoors after dark.