Áttu erfitt með svefninn? 😴
Þá getum við í Framsókn vonandi hjálpað. Kannski eigum við það nefnilega sameiginlegt að vera orðin dálítið þreytt á löngum auglýsingum um kosningaloforð og málefna áherslur stjórnmálaflokkana núna rétt fyrir kosningar.
Við í Framsókn erum að bjóða okkur fram til að láta gott af okkur leiða fyrir Reykvíkinga og góður nætursvefn er eitt mikilvægasta lýðheilsumálið. Og þess vegna ætla ég að tryggja ykkur góðan nætursvefn með því að lesa kosninga áherslur okkar í Framsókn fyrir ykkur inn á þessa hljóðbók.
Og ég vona að þið endist ekki of lengi. Vonandi svífið þið sem fyrst inn í draumalandið, í draumaborginni - Reykjavík 💚
Kemur á allar helstu streymisveitur von bráðar.
Við litum við í Víkinni og færðum öllum mæðrum blóm tilefni mæðradagsins áður en við tókum svo á móti frábæru fólki í mæðradags kaffi hjá okkur í Borgartúninu 💚 Takk fyrir innlitið og til hamingju með gærdaginn mæður.