Ekki missa af þessari 🌭 Við kynnum til leiks morgunverðapylsuna á aðeins 899 kr.
Beikonvafin ostapylsa með eggjasalati og beikonmulningi ásamt sætri og sterkri sriracha-sósu 🤤
Bragðgóður, próteinríkur og fljótlegur morgunmatur á ferðinni? Við reddum því á næstu stöð.
*Fæst ekki á Akranesi, Húsavík, Ólafsvík og Reykjavíkurvegi.
Loksins, loksins! 🤩 Dósin sem margir hafa beðið eftir er loksins komin til okkar, HM súperdósin ⚽
Við mælum með að kíkja til okkar og grípa þér eina ískalda með pylsunni 🌭
Hönnun sem þú getur setið á! ♻️
HönnunarMars er hafinn, árleg hátíð þar sem íslensk hönnun og sköpun fá að njóta sín víðs vegar um borgina. FLÖFF og N1 hafa unnið saman að verkefni fyrir HönnunarMars þar sem gömlum starfsmannafatnaði var gefið nýtt líf. Fatnaður sem annars hefði endað sem úrgangur var endurunninn og útbúinn bekkur sem nú er sýndur á þjónustustöð okkar við Hringbraut ✨
Verkefnið sýnir hvernig hringrásarhugsun getur orðið hluti af daglegum rekstri og hvernig skapandi nálgun getur umbreytt efni og gefið því nýtt líf.
Bekkurinn verður til sýnis út helgina á þjónustustöð okkar við Hringbraut. Við mælum með að þið kíkið við, setjist niður og njótið dýrindis kaffibolla eða pylsu á meðan 🌭
Við hvetjum ykkur einnig til að kynna ykkur dagskrá HönnunarMars og upplifa alla þá fjölbreyttu hönnun og nýsköpun sem er í gangi um alla borg 💡