Takk fyrir komuna á sýninguna okkar á @designmarch á Parliament Hotel! Og takk fyrir stórfenglegar viðtökur, við getum ekki beðið eftir að halda áfram 🪱🪱🪱
Síðasti sýningardagur í dag, sunnudaginn 17. maí, lítið endilega við og kíkjið inn á heimasíðuna orar.studio til að nálgast frekari upplýsingar um munina og pantanir.
‘Lækur’. Hand skúlptaður, pússaður, litaður og bólstraður í stúdíóinu okkar í Skerjafirði.
Berið hann augum á Parliament Hotel út sunnudaginn 17. maí og kíkið á orar.studio fyrir frekari upplýsingar og pantanir!
🪱🪱🪱
Takk fyrir komuna á opnunina okkar á Parliament Hotel í gær, við erum svo yfir okkur glaðar að fá að sýna ykkur það sem við höfum verið að vinna að - og þetta er bara blábyrjunin! Sýningin stendur opin út sunnudag og það er opið inn á lobbýið þar sem hún er alla daga frá 7 á morgnanna til 12 á kvöldin - þannig kíkjið við þegar það hentar!
Nánari upplýsingar og pantanir inn á heimasíðunni orar.studio 🪱🪱🪱
Allt að verða klárt fyrir opnun í dag, fimmtudaginn 7. maí kl 18-20 á Parliament Hotel á @designmarch 🪱🪱🪱
Sýningin stendur svo opin í lobbýinu út sunnudaginn 10. maí, opið alla daga frá 07-24.
SJÁUMST ÞAR!
Hæ við erum ÓRAR 🪱
Getum ekki beðið eftir að sýna ykkur fyrstu munina okkar á @designmarch - opnun á fimmtudaginn 7. maí kl 18-20 á Parliament Hotel!
Sjáumst þar!
Við kynnum með stolti; @orar.studio . Nýja hönnunarstúdíóið okkar @julohaf og @elsajei ✨✨✨ ÓRAR dansar á mörkum listar og hönnunar og tekur sér form í skúlptúrískum húsgögnum sem segja sögur, ögra minímalismanum, framkalla draumkenni og leggja áherslu á handverkið.
Það sem af er liðið árs höfum við verið að þróa fyrstu muni @orar.studio sem verða frumsýndir á Parliament Hótel á @designmarch !
Hlökkum til að sýna/sjá ykkur!
Með sorg og þakklæti í huga kveðjum við þann mikla hugsuð og galdramann Guðmund Odd. Maðurinn sem kenndi ekki bara hönnun og list eftir stöðlum heldur kenndi mér á lífið og lestur þess sem liggur á milli hluta.
LJÁÐU EYRA | Síðasta sýningarhelgi. Nú eru síðustu forvöð að sjá sýninguna Ljáðu Eyra með verkum Elsu Jónsdóttur í D-sal Hafnarhúss sem lýkur sunnudaginn 21. september.
Á sýningunni verða hljóð og hlustun að innsetningu sem höfðar til skilningarvitanna þar sem skúlptúrar, hljóðmynd og innsetning ljósa bjóða upp á margþættan lestur. Í verkum sínum þróar Elsa tákn sem hún umbreytir til þess að kalla fram nýja merkingu tengda viðfangsefnum sínum.
//
LEND AN EAR | Final exhibition weekend. The last day of the exhibition Elsa Jónsdóttir: Lend an Ear in Gallery-D in Hafnarhús is Sunday, 21 September.
In the exhibition, sounds and the act of listening are turned into an installation that affects our sensory organs whereas sculptures, sound and light installation offer several layers of readings. In her works, Elsa develops symbols that she transposes, teasing out a new meaning for her subjects.
#listasafnreykjavikur #reykjavikartmuseum @reykjavikurborg #reykjavik @visitreykjavik #visitreykjavik @borgin.okkar #borginokkar @menningarkort #menningarkort #myndlist #icelandicart #icelandicartist
SAMTAL LISTAMANNS OG SÝNINGARSTJÓRA: Elsa Jónsdóttir og Zsóka Leposa eiga samtal um sýninguna Ljáðu eyra í D-sal Hafnarhúss, fimmtudaginn 18. september kl. 20.00. Viðburðurinn fer fram á ensku.
Í verkum sínum leggur Elsa stund á formfræði tungumálsins, letur, orð og tilvísanir. Hún rannsakar lestur í sínum víðasta skilningi og færir hugrenningar sínar í tákn, form og stafi.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 21. september.
//
ARTIST AND CURATOR TALK | Artist Elsa Jónsdóttir and Curator Zsóka Leposa in conversation about the exhibition Lend an Ear in D-gallery at Hafnarhús, on
18 September 20h00. In English.
Elsa works with the morphology of the language, typography, words and allusions. Her work expresses a vocabulary of expression, constructing symbols and forms into visual poetry.
The last exhibition day ís Sunday, 21 September.
#listasafnreykjavikur #reykjavikartmuseum @reykjavikurborg #reykjavik @visitreykjavik #visitreykjavik @borgin.okkar #borginokkar @menningarkort #menningarkort #myndlist #icelandicart #icelandicartist