Virkilega óraunveruleg tilfinning að hefja þetta leikár i Borgarleikhúsinu og fá afhent starfsmannakort merkt leikstjóra. Ég er þvílíkt hrærður, spenntur, stressaður, uppi, niðri og til hliðar yfir þeim heiðri að ganga til liðs við frábæra starfskraftinn í því góða leikhúsi. Ég vinn að tveimur sýningum í ár - sú fyrri heitir Skammarþríhyrningurinn. Þar vinn ég sem dramatúrg og aðstoðartónlistarstjóri undir leiðsögn Grétu Kristínar, ásamt einstaklega hýru teymi. Þar verður vókið góða tekið fyrir, sem enginn virðist vera að tala um? Næst dembi ég mér í leikstjórn á sketsasöngleikjarevíuskaupinu Ekki Hugmynd sem Gaflaraleikhúsið vinnur innan veggja Borgarleikhússins. Sem líka tónlist með Vigdísi minni Hafliða (betur þekkt sem vigga haff) fyrir þá sýningu. Þar verður veruleiki ungs fólks í dag tekinn í bakaríið og úr honum bakað vellyktandi og bráðfyndið brauð. 🤪💬 Og já, auðvitað verða veitt þátttökuverðlaun fyrir að mæta og vera duglegur áhorfandi(:
E.s. hafiði heyrt um kortasölu borgarleikhussins? Hef heyrt að hún sé næs. Linkur í bio!
Háskólabíó we are in you! Brjálæðið heldur áfram og söngleikurinn minn Vitfús Blú verður frumsýndur á laugardag í samstarfi við Afturamóti🎸🤖 miðinn er á 4500kr sem er RÁN fyrir söngleik með 7 manna hljómsveit og 7 manna leikhóp sem syngur og dansar úr sér lífið. 🚀🚀🚀🚀sé ykkur 10. og eða 13. ágúst🤠
Sumar myndir gætu verið photoshoppaðar.
#vitfustru
Ljósmyndir frá lokaverkinu SÓL EY, útskriftarverk Egils Andrasonar af sviðshöfundabraut.
————————
FOKKSJITT. Þessi var stór. Okei, okei, okei, bara anda niður til barnsins. Anda niður til þín. Þú skalt fá að sjá, að lykta, að lifa…sama hvað það kostar.
Sól_Ey er útskriftarverk Egils Andrasonar á Sviðshöfundbraut Listaháskólans sem fjallar um boltalandsstarfsmanninn Sóleyu (20) og krakkana Dýrunni (11), Unnar (10), Pissa Kalla (8) og Hannes (4).
Sumir verða alltaf lítil börn.
Aðstandendur // Participants:
Höfundur og leikstjóri: Egill Andrason.
Leikarar og meðhöfundar: Ágúst Örn Börgesson Wigum, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Jakob van Oosterhout, Katla Þórudóttir Njálsdóttir og Mikael Emil Kaaber.
Höfundur, aðstoðarleikstjóri, stoð og stytta: Melkorka Gunborg Briansdóttir.
Dramatúrg: Sölvi Viggósson Dýrfjörð.
Lýsing: Sölvi Viggósson Dýrfjörð og Egill Andrason.
Aðstoð við sviðshreyfingar: Sara Lind Guðnadóttir.
Aðstoð við leikmynd og búninga: Elísa Þóreyjardóttir og Kári Þór Barry.
Grafík: Dýrunn Elín Jósefsdóttir.
Aðstoð við tónlist og hljóð: Una Mist Óðinsdóttir.
Ljósmyndir: Leifur Wilberg Orrason
Góðir landsmenn nú fer ég (sjá mynd) að gerast listamaður loksins og útskrifast úr Listaháskóla Íslands í júní ásamt fríðasta og flottasta bekk síðari ára (mynd 2). Í tilefni þess er ég með útskriftarsýningu (mynd 3) sem að er alveg nokkuð flott enda er allt listafólkið sem kemur að henni nokkuð flott líka. Það var uppselt á allar sýningarnar mínar en ég var að bæta við aukasýningu fimmtudag 21. mars, þannig ef þið misstuð af miðum þá er lífið núna og hæ hó jibbí jei.
Linkur i bio
Veggspjald: @dyrunnelin
SÓL EY
Lokaverk Egils Andrasonar
Sviðshöfundabraut
Frumsýning 21. mars 20:30
————————
FOKKSJITT. Þessi var stór. Okei, okei, okei, bara anda niður til barnsins. Anda niður til þín. Þú skalt fá að sjá, að lykta, að lifa…sama hvað það kostar.
Sól_Ey er útskriftarverk Egils Andrasonar á Sviðshöfundbraut Listaháskólans sem fjallar um boltalandsstarfsmanninn Sóleyu (20) og krakkana Dýrunni (11), Unnar (10), Pissa Kalla (8) og Hannes (4).
Sumir verða alltaf lítil börn.
Höfundur og leikstjóri: Egill Andrason.
Leikarar og meðhöfundar: Ágúst Örn Börgesson Wigum, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Jakob van Oosterhout, Katla Þórudóttir Njálsdóttir og Mikael Emil Kaaber.
Höfundur, aðstoðarleikstjóri, stoð og stytta: Melkorka Gunborg Briansdóttir.
Dramatúrg: Sölvi Viggósson Dýrfjörð.
Lýsing: Sölvi Viggósson Dýrfjörð og Egill Andrason.
Aðstoð við sviðshreyfingar: Sara Lind Guðnadóttir.
Aðstoð við leikmynd og búninga: Elísa Þóreyjardóttir og Kári Þór Barry.
Grafík: Dýrunn Elín Jósefsdóttir.
Aðstoð við tónlist og hljóð: Una Mist Óðinsdóttir.
Þakkir:
Bíllinn hennar Elínborgar, hendurnar á henni og Ingu, Körlu, Álfgrími og Hadda, bekkurinn allur, Cristina, Krisztina og Maximo Agueda og Fjölskylduland, Ögnmundur og Irma productions, Ilmur Stefánsdóttir, Egill Ingibergsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Hilmir Jensson, Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Natalía Erla Arnórsdóttir, Sigurjón Jónsson og rest;)
Hvenær:
Fim, 21. mars kl. 20:30
Fim 21. mars kl. 22:30
Fös, 22. mars kl. 20:00
Lau, 23. mars kl. 21:30
Sun, 24. mars kl. 16:00
Hvar:
Sýnt í Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík
Rými: L220
Gengið er inn um aðalinngang fyrir NEÐAN hús frá steypta bílastæðinu.
*Tungumál: íslenska.
**Trigger warning, ofbeldifull og grótesk þemu í sýningunni. Ekki við hæfi barna.
Ég minnist 2023 fullur auðmýktar... Örlaganornirnar hafa verið mér örlátar en ég fékk að taka þátt í raunveruleikaþætti og kynnast nýjasta og elsta vini mínum Þorvaldi Kristinssyni, leikstýra og skrifa minn eigin söngleik (Vitfús Blú), vinna sem sumarlistamaður Akureyrar, sýna með @teenagesongbook í Sviss og Þýskalandi, kynna Skrekk með @helgasalvor , vinna að og sýna Fúsa: Aldur og fyrri störf í Borgarleikhúsinu og að semja tónlist og hljóðmynd með kyngimögnuðu @neonmeeee fyrir Edduna í Þjóðleikhúsinu. Hitt einkastöffið hinsvegar - pylsurnar í Laugardalnum, heimskulegu spurningarnar mínar og flissandi svörin, rússíbanareiðirnar (bókstaflegu og tilfinningalegu) og endalausu pirrandi ömurlegu leiðinlegu þreytandi allsherjarstemningsdrepandi tjaldsuppsetningarnar sem virka alltaf svo lífsauðgandi eftirá - skyggir á rest, og minnir á hvað lífið getur verið blítt en brothætt.