Oliver þakkar fyrir gott ár. Hann gerði alls konar og eignaðist nýja vini og tók upp þáttaröð um hesta og toppaði með hlutverki í áramótaskaupinu - varð aðeins móðgaður þegar hann frétti hvaða hlutverk hann átti að fá, en lét sig hafa það. (Hann lofaði reyndar óvart að hann gæti gelt on cue, sem var ekki alveg satt og olli dálítið miklu veseni á tökustað. 😬😬😬 En það reddaðist.) Takk fyrir okkur og árið og kærar kveðjur 🥰💥💫
Það náðist ágætis mynd af mér og forsetanum á forsýningu Reykjavík Fusion👆😂 Við í @act4_production vorum í skýjunum með alla þessa góðu gesti og viðtökurnar. Takk og takk🙏🙏🙏